
Olíubrák – ljóðstafir kvenna í olíu.
Myndlistarsýning:
ljóð eftir konur sem ekki eru meðal vor í dag nema þá í gegnum ljóðin sín. Eru hér málud uppá yfirborðið.
Hugmyndafræðin er þessi að taka þessi ljóð og láta boðskap þeirra fljóta upp á yfirborðið í olíu í þessum lífsins ólgusjó. Boðskapurinn: gleymum ekki röddum þeirra sem fæddu okkur í þennan heim þær minna okkur á að vinna, elska börnin og gefast aldrei upp á listinni og berjast fyrir réttlætinu.
Mín skoðun er sú að aldrei hafa raddir þessara kvenna verið þarfari en nú.
Skáldkonurnar sem málað er í gegnum að þessu sinni heita:
Brynja Einarsdóttir (orð)
Ólína ( til næturinnar ) og Herdís Andrésdætur ( dáni fuglinn)
Filippía Kristjánsdóttir skáldanafnið Hugrún með ljóðið (Tungskinsnótt)
Guðrún Árnadóttir ( gleði)
Jakobína Johnson (vor)
Ólöf Sigurðardóttir ( lítil )
Oddný Guðmundsdóttir (draumur konu Pílatusar)
Unnur Benediktsfóttir Bjarklind- Hulda ( Maríutása)
Kristjana E. Guðmundsdóttir (Börnin mín)
Serían óður til litlu blómanna -3 verk:
Guðný frá Klömbrum (kveðja)
Unnur Benediktsfóttir Bjarklind- Hulda (sjá eina perlu skorti)
Guðbjörg Árnadóttir (nokkur ljóð úr bókinni ljóðmæli ljóðin heita: eptirmæli barna og eru svo tölusett eftir fjölda látinna barna)
Serían nótt 4 verk:
Ólína Andrésdóttir ( til næturinnar )
Ólína Jónasdóttir (í rökkrinu)
María Bjarnadóttir (ljósbrot)
Vilborg Dagbjartsdóttir (óður til mánans)
Sýningin er óður til skáldakvenna okkar og hefði mig ekki getað grunad þann fjársjóð sem víða leynist inni á heimilum eða á bókhlöðunni. Verkefnið varð mun stærr en eg stefndi að í fyrstu og er ég að verða mjög anægð með þróun mála. Það er þó svo að þetta verður ekki eina sýningin í olíubrákar röðinni. Því þetta verkefni er rétt að byrja.