Kvennaverkfall2025-11-05T15:31:53+00:00

Stundin er runnin upp

Kvennaverkfall 24. október 2025

Föstudaginn 24. október 2025 eru konur og kvár hvött til að leggja niður launuð sem ólaunuð störf allan daginn eins og konur gerðu árið 1975.
Bakslagið í jafnréttisbaráttunni er raunverulegt: Tilkynningum um kynbundið ofbeldi fjölgar, launamunur kynjanna eykst, það er misrétti í verkaskiptingu á heimilum og hreyfingar sem ala á andúð gegn konum, hinsegin fólki og útlendingum er að skjóta rótum hér á landi.
Dagskráin í Reykjavík verður tvíþætt; fyrri hlutinn er söguganga um áfanga í kvennabaráttunni og sá seinni er útifundur við Arnarhól.

„Sko mömmu, hún hreinsaði til”

Söguganga um merka áfanga í íslenskri kvennabaráttu

Konur og kvár í Kvennaverkfall þann 24. október á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni safnast saman á horni Sóleyjargötu og Njarðargötu þar sem söguganga hefst kl. 13:30 og stendur til rétt fyrir kl. 15. Gangan krefst ekki leiðsagnar heldur verða atriði, gjörningar, list, leikur, spuni, uppistand, baráttusamtök og söngur á mismunandi stöðum á gönguleiðinni. Göngufólk stjórnar því eigin hraða á göngunni en vissara er að gefa sér rýmri tíma en ekki áður en haldið er á útifund á Arnarhóli sem hefst kl. 15.

Við mætum þar til við þurfum ekki að mæta lengur

Við sameinumst við Arnarhól kl. 15:00 þar sem við tökum höndum saman í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna og því að stjórnvöld efni kröfur Kvennaárs. Tónlistaratriði, ræður og kvennakraftur — það jafnast ekkert á við að finna fyrir samstöðukrafti kvenna og kvára.

Go to Top