Náttfatavinkonupartí á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna

Í tilefni af 8. mars – Alþjóðlegum baráttudegi kvenna, býður bókasafnið uppá fjörugt náttfatavinkonupartí.
Þátttakendur eru hvattir til þess að mæta í náttfötum eða kósýgalla og ekki er verra að taka bangsakrútt með sér.
Boðið verður uppá: Popp, djús, tónlist, vinabandagerð og vinatré.

UPPLÝSINGAR

  • Umsjón: Bókasafn Garðabæjar
  • 8. mars kl. 12:00
  • Bókasafn Garðabæjar, Garðatorg 7, Garðabær, 210