Móðir, kona, meyja

Í tilefni kvennaárs verður sýnt brot úr verkinu Móðir, kona, meyja, eftir Umskiptinginn Sesselíu Ólafs, en verkið fjallar um þrjár konur sem þekkjast ekki en hittast í bústað til þess að lesa. Þær eru á ólíkum aldri, ein nýlega útskrifuð úr menntaskóla, ein að nálgast fertugt og ein um sextugt. Sú yngsta elskar að dansa, sú fertuga vill helst bara lesa í friði og sú elsta er spennt að kynna hinum ljóð og sögur íslenskra skáldkvenna. Engin þeirra er alls kostar sátt við sínar aðstæður en þær komast smám saman að því að þær geta lært ýmislegt hver af annarri.

UPPLÝSINGAR

  • Umsjón: Umskiptingar
  • 18. október kl. 14:00
  • Amtsbókasafnið á Akureyri
  • Viðburðurinn er á 1. hæð Amtsbókasafnsins á Akureyri. Sunnan megin við húsið eru bílastæði fyrir fólk sem notar hjólastóla. Aðgengilegt salerni er á 1. hæð.
  • Íslenska // Icelandic