©Magnús Ólafsson / Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Myndin var tekin þann 7. júlí 1915 þegar kosningarétti kvenna var fagnað í Reykjavík

Kvöldganga I Söguslóðir kvenna í Reykjavík

Verið velkomin í ókeypis göngu um söguslóðir kvenna fimmtudaginn 19. júní kl. 17.00.🚶‍♀️

Kristín Svava Tómasdóttir, sagnfræðingur og rithöfundur, mun leiða göngufólk um söguslóðir kvenna í miðbæ Reykjavíkur á þessum sögulega degi 19. júní, en í ár eru 110 ár síðan íslenskar konur 40 ára og eldri fengu langþráðan kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Stoppað verður á völdum stöðum og greint frá mörgum merkum þáttum í sögu kvenna í Reykjavík, því án framlags kvenna væri margt öðruvísi í henni Reykjavík.

Gangan hefst við Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagötu 15 og fer fram á íslensku. Gangan tekur um 1 og ½ klukkustund.

Gangan er hluti af viðburðaröðinni Kvöldgöngur en að henni standa Borgarsögusafn, Borgarbókasafn, Listasafn Reykjavíkur og Reykjavík Bókmenntaborg Unesco. Göngurnar fara fram á fimmtudögum yfir sumarmánuðina. Kvöldgöngurnar eru gjaldfrjálsar og öll eru hjartanlega velkomin.

Ljósmynd: ©Magnús Ólafsson / Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Myndin var tekin þann 7. júlí 1915 þegar kosningarétti kvenna var fagnað í Reykjavík

UPPLÝSINGAR

  • Umsjón: Borgarsögusafn Reykjavíkur
  • 19. júní kl. 17:00
  • Tryggvagata 15, Tryggvagata 15, Reykjavík, 101
  • Íslenska // Icelandic

  • Gengið um götur í miðbæ Reykjavíkur.