Kven­rétt­inda­dag­urinn á Árbæjarsafni

Kven­rétt­inda­dag­urinn – Frítt inn fyrir konur og kvár!

Á Kvenréttindadaginn, þann 19. júní, býður Árbæjarsafn konum og kvárum ókeypis aðgang að safninu í tilefni dagsins. Þennan dag árið 1915 fengu íslenskar konur 40 ára og eldri kosningarétt og kjörgengi til alþingis. Í tilefni þeirra 110 ára sem hafa síðan liðið, verður leiðsögn um safnsvæðið tileinkuð sögu kvenna kl. 14:00.

Kvenréttindadagurinn minnir okkur á þann kraft og þrautseigju sem konur hafa sýnt í gegnum tíðina í baráttunni fyrir mannréttindum, kosningarétti, menntun, atvinnu og virðingu. Á Íslandi fengu konur kosningarétt árið 1915, og síðan þá hefur baráttan haldið áfram – fyrir launajafnrétti, gegn kynbundnu ofbeldi og fyrir fjölbreyttari sýn á kyn og kyngervi. Þessi dagur er tækifæri til að minnast sögunnar, heiðra brautryðjendur og hvetja til áframhaldandi breytinga. Verið hjartanlega velkomin!

UPPLÝSINGAR

  • Umsjón: Borgarsögusafn Reykjavíkur
  • 19. júní kl. 10:00
  • Árbæjarsafn, Kistuhylur 110, Reykjavík, 110
  • Tungumál skiptir ekki máli // Language is irrelevant

  • Árbæjarsafn er útisafn á stóru safnsvæði. Þar eru yfir 20 hús opin gestum á opnunartíma safnsins. Húsin eru margbreytileg, í sumum þeirra eru lítil rými og þröngir stigar en í öðrum eru stærri salir. Auðvelt er að þekkja starfsfólk safnsins sem klæðist búningum frá fyrri tímum. Í miðasölunni er alltaf starfsmaður sem getur aðstoðað og gefið upplýsingar. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru 50 metra frá inngangi safnsins. Tveir strandhjólastólar eru til láns á safninu. Í Landakoti eru salerni með aðgengi fyrir fatlaða og skiptiborði fyrir ungabörn. Nánar: https://borgarsogusafn.is/adgengi