
Kvennaganga fyrir friði og réttlæti
8.mars er Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti. Kvenfélög, stéttarfélög, friðar- og mannréttindasamtök hafa í áraraðir sameinast í baráttufundi á þessum degi undir ýmsum formerkjum. Í ár beinum við sjónum að þeirri hernaðar-og nýlenduhyggju sem einkennt hefur heimsmálin síðustu misseri. Þar er skemmst að minnast herskárra yfirlýsinga Bandaríkjaforseta um yfirtöku á Grænlandi og Gaza.
Við getum ekki aðskilið baráttu fyrir kvenréttindum frá baráttu fyrir friði, jöfnuði og réttlæti. Við krefjumst þess að allar konur njóti frelsis og mannréttinda án mismununar. Baráttan fyrir friði er kvennabarátta því stríð eru yfirleitt hafin af karlmönnum en hafa ekki síst áhrif á konur og börn. Konur hafa alltaf verið leiðandi í friðarbaráttunni og 8. mars setjum við frið og réttlæti aftur á dagskrá!
Gengið verður frá Arnahóli að Iðnó þar sem verður baráttufundur kl. 13.30