HVAÐ EIGA KONUR AÐ VERA AÐ GERA!?!

Una Þorleifsdóttir og Ebba Katrín Finnsdóttir bjóða gestum og gangandi á afrakstur vinnustofu sinnar í Ásmundarsal, laugardaginn 28. júní milli klukkan 13 og 15 þegar þær frumflytja senur og sýna senuvinnu uppúr nýskrifuðu leikverki þeirra ,,Hvað eiga konur að vera að gera?!“

Síðast liðnar fjórar vikur hafa Ebba og Una verið með opna vinnustofu í Gunnfríðargryfju og rannsakað í gegnum skrif og verkefni hlutverk, aðstæður og stöðu kvenna og kyngervisins. Innblástur verkefnisins er bókin Konur sem kjósa – aldarsaga eftir Erlu Huldu Halldórsdóttur, Kristínu Svövu Tómasdóttur, Ragnheiði Kristjánsdóttur og Þorgerði H. Þorvaldsdóttir.

Efnið sem varð til í vinnustofunni verður flutt þann 28. júní – textar og innblástur festir á veggi, fluttir sem textabrot eða framkallaðir í efnislegum gjörningum og afrakstur vinnustofunnar þannig safn ólíkra verka; texta, frásagna, vídjó og gjörninga sem saman munu mynda grunn að stærra sviðsverki.

Á lokahófi vinnustofunnar, þann 28. júní kl. 13 mun afraksturinn vera sýndur, þar sem fram koma Una og Ebba, ásamt gestum og fjallkonunni.

Frítt inn og léttar veitingar.

UPPLÝSINGAR

  • Umsjón: Ásmundarsalur
  • 28. júní kl. 13:00
  • Ásmundarsalur, Freyjugata 41, Reykjavík, 101
  • Íslenska // Icelandic

  • Aðgengi er ekki gott fyrri hjólastóla eða hreyfihamlaða. Viðburðurinn er í Gryfjunni í Ásmundarsal sem er á 1 hæð en niður 7 tröppur.