Druslugangan

Ef eitt okkar er úthrópað drusla, erum við öll druslur!♡
Þann 26. júlí munum við ganga í þrettánda sinn frá Hallgrímskirkju til stuðnings þolenda kynferðisofbeldis og í andstöðu við upphafðri nauðgunarmenningu og þolendaskömmun sem heldur áfram að menga samfélagið okkar.
Gangan í ár verður til heiðurs Ólafar Töru og allra þolenda sem týnt hafa lífinu í þessari baráttu. Framlag hennar til Druslugöngunnar er okkur ómetanlegt og við biðjum ykkur öll um hjálp við að halda hennar sterka baráttuanda á lofti – ásamt þess að veita henni og öllum þolendum allramestu virðingu og ást. Baráttunni þarf að halda uppi, og til að vitna í Ólöfu: „Tími þagnarinnar er löngu liðinn“.
Druslugangan er samstöðuganga með þolendum kynferðislegs ofbeldis sem er orðinn rótgróinn hluti af reykvíska sumrinu, en hún var fyrst gengin árið 2011. Markmið göngunnar er að losa þolendur kynferðislegs ofbeldis undan skömminni og byrðinni sem ofbeldi skilur eftir sig og búa til öruggt rými uppfullt af samstöðu og kærleika. Þolendur af öllum kynjum og öll þau sem vilja sýna stuðning sinn í verki eru hjartanlega velkomin.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Design -> Sóley Erla Jónsdóttir Líndal (@soleylindal)
Photo credits -> Heiðrún Fivelstad (@heidrunfivelstad)

UPPLÝSINGAR

  • Umsjón: Druslugangan
  • 26. júlí kl. 14:00
  • Hallgrímskirkja
  • Íslenska // Icelandic, Tungumál skiptir ekki máli // Language is irrelevant

  • Druslugangan er viðburður á víðavangi og er þannig aðgengilegur flestum. Gangan fer frá Hallgrímskirkju og lýkur á Austurvelli þar sem fram fer dagskrá. Dagskrá er táknmálstúlkuð.