
Blómsveigur lagður að leiði Bríetar
Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar, leggur blómsveig leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í Hólavallagarði í tilefni kvenréttindadagsins 19. júní 2025.
Dagskrá:
- 16.00 – Tónlist – Rebekka Blöndal og Andrés Þór Gunnlaugsson
- 16.05 – Krans lagður á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur
- 16.10 – Ávarp forseta borgarstjórnar
- 16.20 – Tónlist – Rebekka Blöndal
- 16.30 – Dagskrá lokið
Öll velkomin.
Bríet Bjarnhéðinsdóttur átti ríkan þátt í að koma á réttarbótum konum til handa og efla þannig lýðræðissamfélagið í heild sinni. Hún var stofnandi Kvenréttindafélags Íslands árið 1907 og var fyrsti formaður félagsins frá stofnun allt til ársins 1928. Markmið félagsins var að starfa að því að íslenskar konur fengju fullt stjórnmálajafnrétti á við karlmenn, kosningarétt, kjörgengi svo og embættisgengi og rétt til atvinnu með sömu skilyrðum og karlmenn.