1. maí // Vestmannaeyjar

Kvennaársandinn svífur yfir vötnum á viðburðum í tilefni að alþjóðlegum baráttudegi verkalýðs. Að því tilefni tekur Kvennaár saman dagskrá víðsvegar um landið.

Við fögnum 1. maí í Akóges og minnumst þess að í ár eru 50 ár liðin frá Kvennafrídeginum og mun dagurinn taka mið af því.

Húsið opnar kl. 14:00

  • Tekið verður á móti börnum á öllum aldri með andlitsmálningu og blöðrum.
  • Allir fá “Hölluklút” um hálsinn.
  • Ávarp, kaffi, vöfflur og fleira á boðstólnum.
  • Konur úr kvennakór Vestmannaeyja flytja nokkur lög.
  • Tónlistarveisla frá Tónlistarskóla Vestmannaeyja sem sér að vanda um tónlistarflutninginn.

Allir velkomnir og aðgangur að sjálfsögðu ókeypis.

UPPLÝSINGAR

  • Umsjón:
  • 1. maí kl. 14:00
  • Akóges, Hilmisgötu 15, Vestmannaeyjar, 900