1. maí // Akureyri
Kvennaársandinn svífur yfir vötnum á viðburðum í tilefni að alþjóðlegum baráttudegi verkalýðs. Að því tilefni tekur Kvennaár saman dagskrá víðsvegar um landið.
Kröfuganga
Kl. 13:45 – Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
Kl. 14:00 – Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
Hátíðardagskrá í Hofi að lokinni kröfugöngu
- Kynnir – Eyrún Huld Haraldsdóttir
- Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna – Bethsaida Rún Arnarson
- Aðalræða dagsins – Anna Júlíusdóttir, formaður Einingar-Iðju
Skemmtidagskrá
- Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr Galdrakarlinum í OZ
- Karlakór Akureyrar Geysir syngur tvö lög og leiðir samsöng í lokin
Félag Málmiðnaðarmanna Akureyri, Rafiðnaðarfélag Norðurlands, Byggiðn – félag byggingarmanna, Sameyki – Stéttarfélag í almannaþjónustu, Kjölur – Stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, Eining-Iðja, VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna, Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri, Kennarasamband Íslands
