
WIFT Kvennaárs bíósýning – Hvað er svona merkilegt við það
WIFT Íslandi, félag kvenna í kvikmyndum og sjónvarpi verður með Kvennaárs sýningu á myndinni Hvað er svona merkilegt við það eftir Höllu Kristínu Einarsdóttur þann 20. október, klukkan 19:00 í Bíó Paradís.
Eftir sýninguna mun Halla Kristín Einarsdóttir segja frá gerð myndarinnar og svara spurningum úr sal.
,,Hvað er svona merkilegt við það fjallar um skrautlega kvennabaráttu níunda og tíunda áratugarins. Myndin rekur sögu Kvennalistans og annara kvenfrelsishræringa á grósku miklum tímum og hvað gerist þegar grasrótarsamtök storma inn í hið skipulagða kerfi. Við lendum þó árið 2015 eftir nokkur ferðalög m.a. til Afghanistan.
Viðmælendur eru flestir þjóðþekktir fyrir störf sín á ýmsum vettvangi. Meðal annara eru þar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Ragnhildur Gísladóttir, Salome Þorkelsdóttir, Edda Björgvinsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir og margar fleiri kempur”
WIFT meðlimir (með framvísun félagsskírteinis) – Verð 500 krónur
Almennt verð 1500 krónur