Kona/Femme/Frau – sköpun kvenna // Námskeið

Í tilefni 50 ára afmælis Kvennafrídagsins býður Endurmenntun Háskóla Íslands upp á lifandi og áhugavert tveggja kvölda námskeið þar sem sérfræðingar í myndlist og hönnun veita dýrmæta innsýn í verk kvenna á þessu sviði – bæði í sögulegu samhengi og samtímanum, heima og erlendis. Fáðu einstaka sýn á framlag kvenna í myndlist og hönnun!

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Útilistaverk og opinber rými
  • Framtíðar verk í miðbænum: Tíðir
  • Erlend útilistaverk og safneignir
  • Konur og hönnun
  • Tísku og hönnunarsögu t.d. Vionnet, Chanel, Lanvin ofl.

Ávinningur þinn

  • Dýpri þekking á myndlist og hönnun kvenna, bæði í sögulegu og samtímalegu samhengi.
  • Innsýn í sjónarhorn kvenna sem starfa við sköpun og hönnun.
  • Einstakt tækifæri til að skyggnast bak við tjöldin í ferli hönnunar og listsköpunar frá hugmynd til veruleika.
  • Aukinn skilningur á menningarlegu samhengi sköpunar kvenna, áhrif mótstaða og lykill að velgengni í sögulegu ljósi og samtíma.
  • Aukið næmi og tenging við listaverk og hönnunarvörur, dýpri upplifun og skilningur sem nýtist bæði faglega og persónulega.

Fyrir hverja

Námskeiðið hentar öllum sem vilja dýpka skilning sinn á myndlist og hönnun eftir konur, kvennasögu og skapandi tjáningu kvenna í samtíma og fortíð. Getur verið sérstaklega gagnlegt t.d. fyrir kennara, starfsfólk safna og leiðsögufólk, Engar forkröfur eru á námskeiðið, aðeins áhugi og opinn hugur.

Aðrar upplýsingar

Kennslan fer fram í fyrirlestraformi með myndrænu efni og lifandi umræðum.

Nánar um kennara

Hulda Rós Guðnadóttir er myndlistarmaður, kvikmyndagerðarmaður og rannsakandi með alþjóðlegan feril. Hulda Rós hefur verið búsett í Berlín í 15 ár og starfar sjálfstætt á mörkum myndlistar, kvikmyndagerðar og fræðilegrar rannsóknar. Verk hennar hafa verið sýnd á fjölmörgum sýningarstöðum víða um heim. Hún er stundakennari við Listaháskóla Íslands og hefur áralanga þjálfun í að rýna í borgarlandslag og samfélag út frá sjónarhorni lista.

Sigrún Úlfarsdóttir er alþjóðlegur tískuhönnuður með djúpar rætur í franskri tísku og skapandi menningu. Sigrún hefur verið búsett í París í 30 ár og unnið sem hönnuður hjá stórum tískuhúsum á borð við Karl Lagerfeld, Swarovski og Hervé Léger. Hún hefur einnig hannað ilmvatnsflöskur og snyrtivöruumbúðir fyrir þekkt frönsk merki, m.a. Jean-Paul Gaultier. Áður starfaði hún sem búningahönnuður í Moskvu í fimm ár og í dag rekur hún eigin línur af skóm og skartgripum undir nafninu Divine Love. Sigrún býður dýrmæta innsýn í sögu, strauma og áhrif kvenna í tísku og hönnun – frá verkstæðum stórborganna til persónulegrar sköpunar.

Snemmskráning til og með 27. september: 27.900 kr. Almennt verð er 30.700 kr.

UPPLÝSINGAR

  • Umsjón: Endurmenntun Háskóla Íslands
  • 6. október kl. 20:00
  • Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhaga 7, Reykjavík, 107
  • [event_custom_fields field="_ecp_custom_6[]"]
  • [event_custom_fields field="Aðgengi"]