
Fyrirpartý fyrir kvennavöku
BHM hefur tekið frá garðskýlið á Fröken Reykjavík (Lækjargata 12a) frá kl. 17:00 til 19:00. TIlvalið að hittast þar áður en við röltum saman í Hljómskálagarðinn rétt fyrir kl. 19:00. Á Fröken Reykjavík verður hægt að kaupa drykki á happy hour og fá 15% afslátt af mat á matseðli fyrir þá sem vilja.
Við hvetjum aðildarfélög BHM til að fjölmenna en allir eru velkomnir – þetta er kjörið tækifæri til að hittast, gera sér glaðan dag og taka þátt í kraftmikilli og gleðilegri samveru.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!