Garðaprjón

Flóð & fjara og Textíl Barinn býður öllum gestum og gangandi í nærandi prjónastundir undir berum himni í samstarfi við Sumarborgina.
Garðaprjón eru prjónastundir sem fara fram í Hljómskálagarðinum í sumar, þar sem öllum sem hafa áhuga gefst tækifæri til að setjast niður og prjóna. Þannig er hægt að skapa fallegar samverustundir með óvæntri samsetningu fólks á öllum aldri.
Kennsla í grunnprjóni og allur efniviður verður á staðnum hverju sinni og eftir sumarið verður til garðteppi úr því sem þátttakendur hafa prjónað. Einnig er velkomið er að mæta með sitt eigið prjón/hekl/handavinnu og taka þátt í sundinni. Stundirnar eru tvær klukkustundir í senn og öllum opnar.

Markmiðið er að nota endurnýtta og afgangs þræði og með því sýna fram á hvað sé hægt að gera með þann efnivið.

Handavinna er heilandi gjörningur og sé hún iðkuð í hóp eða samneyti með öðrum eykst mátturinn og töfrarnir. Sköpun eykur vellíðan og að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Hugmyndin með Garðaprjón er að leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur sem róar taugakerfið en örvar jákvæða virkni í heilanum.

Viðburðurinn fer fram í Hljómskálagarðinum við Skothúsveg.

UPPLÝSINGAR

  • Umsjón: Textíl Barinn og Flóð og fjara
  • 19. júní kl. 15:00
  • Hljómskálagarður, Sóleyjargata 2, Reykjavík, 101
  • Tungumál skiptir ekki máli // Language is irrelevant

  • Við erum úti í Hljómskálagarðinum og þar eru salerni. Aðgengi ætti að vera gott fyrir öll.