
Málþing: Ólga: Frumkvæði kvenna í íslenskri myndlist á 9. áratugnum
Málþing í tengslum við samsýninguna Ólgu: Frumkvæði kvenna í íslenskri myndlist á 9. áratugnum verður haldið á Kjarvalsstöðum á Alþjóðadegi kvenna, laugardaginn 8. mars.
Málþingið fer fram laugardaginn 8. mars kl. 12–14 á Kjarvalsstöðum. Skipuleggjandi og fundarstjóri er dr. Æsa Sigurjónsdóttir en erindi flytja, auk Becky Forsythe, Heiða Björg Árnadóttir, Gerla (Guðrún Erla Geirsdóttir), Harpa Björnsdóttir og Brynhildur Þorgeirsdóttir.