
Prima Facie – National Theatre Live
Vitund, samtök gegn kynbundnu ofbeldi standa fyrir feminískri sýningu á Prima Facie í samvinnu við Bíó Paradís laugardaginn 8.mars kl.19:00.
Jodie Comer (Killing Eve) á hér stórleik í magnaðri uppfærslu Breska Þjóðleikhússins á verkinu Prima Facie.
Verkið fjallar um Tessu sem er ung og upprennandi lögmaður. Hún hefur unnið sig upp í starfi út frá eigin verðleikum en þegar óvæntur atburður á sér stað neyðist hún til þess að horfast í augu við feðraveldið þar sem sönnunarbyrði og siðfeðisvitund kallast á.