
Náttfatavinkonupartí á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna
Í tilefni af 8. mars – Alþjóðlegum baráttudegi kvenna, býður bókasafnið uppá fjörugt náttfatavinkonupartí.
Þátttakendur eru hvattir til þess að mæta í náttfötum eða kósýgalla og ekki er verra að taka bangsakrútt með sér.
Boðið verður uppá: Popp, djús, tónlist, vinabandagerð og vinatré.