
Kvennasögusafnið lítur um öxl
Kvennasögusafn Íslands heldur upp á 50 ára afmæli sitt í ár, á sama tíma hafa tugir félaga femínista, kvenna, launafólks, fatlaðs fólks og hinsegin fólks boðað til Kvennaárs 2025.
Í erindinu mun Rakel Adolphsdóttir fjalla um hvað var í farvatninu árið 1975 og hvernig er verið að vinna með það nú 50 árum síðar.
Þessi fyrirlestur er hluti af Löngum fimmtudögum í mars þar sem gestum er boðið uppá fjölbreytta og fræðandi dagskrá alla fimmtudaga í mars. Frítt inn og léttar veitingar.