• Kona/Femme/Frau – sköpun kvenna // Námskeið

    Endurmenntun Háskóla Íslands Dunhaga 7, Reykjavík, Iceland

    Í tilefni 50 ára afmælis Kvennafrídagsins býður Endurmenntun Háskóla Íslands upp á lifandi og áhugavert tveggja kvölda námskeið þar sem sérfræðingar í myndlist og hönnun veita dýrmæta innsýn í verk kvenna á þessu sviði – bæði í sögulegu samhengi og samtímanum, heima og erlendis. Fáðu einstaka sýn á framlag kvenna [...]

  • The Day Iceland Stood still – kvikmyndasýning

    Þjóðminjasafn Íslands Suðurgötu 41

    „The Day Iceland Stood Still“ eða „Dagurinn sem Ísland stöðvaðist“ er heimildamynd í fullri lengd um kvennafrídaginn á Íslandi 24. október 1975 eftir Pamelu Hogan og Hrafnhildi Gunnarsdóttur. Þann dag lögðu 90% íslenskra kvenna niður störf og margar tóku þátt í kvennafrídeginum á Lækjartorgi og víða um land. Samstaða íslenskra [...]

  • Svava – heimildamynd

    554285358_17847883383566819_6604417233696703648_n - Elísa Elíasdóttir

    Mynd Hrefnu Haraldsdóttur frá árinu 2004 verður sýnd á tónlistardeild Bókasafns Hafnarfjarðar. Svava Jakobsdóttir var einn fremsti rithöfundur Íslendinga á 20. öld auk þess að vera mikil baráttukona á sviði kvenfrelsismála og hafði með sögum sínum, leikritum og sjónvarpsverkum mikil áhrif á samtíð sína. Í heimildarmyndinni er rætt við nokkra [...]

  • Svava – heimildamynd

    554285358_17847883383566819_6604417233696703648_n - Elísa Elíasdóttir

    Mynd Hrefnu Haraldsdóttur frá árinu 2004 verður sýnd á tónlistardeild Bókasafns Hafnarfjarðar. Svava Jakobsdóttir var einn fremsti rithöfundur Íslendinga á 20. öld auk þess að vera mikil baráttukona á sviði kvenfrelsismála og hafði með sögum sínum, leikritum og sjónvarpsverkum mikil áhrif á samtíð sína. Í heimildarmyndinni er rætt við nokkra [...]

  • ÞÆR, Gerla – Guðrún Erla Geirsdóttir // Einkasýning í Glerhúsinu

    Glerhúsið Vesturgötu 33b, Iceland

    Gerla – Guðrún Erla Geirsdóttir ‒ sýnir um 25 ný verk unnin 2023–2025 í Glerhúsinu. Verkin sækja innblástur í útsaum og handverk kvenna frá aldamótunum 1900, þar sem persónuleg og pólitísk reynsla fléttast saman í textíl, minni og efni. Sýningin er haldin fimmtíu árum eftir kvennaverkfallið og minnir á mikilvægt [...]

  • Kynja- og margbreytileikasjónarmið á Kvennaári: Ójöfnuður meðal kvenna á íslenskum vinnumarkaði

    Háskólatorg HT-103 Háskóla Íslands, Reykjavík, Iceland

    Kynjafræði við Stjórnmálafræðideild, í samvinnu MARK – Miðstöð margbreytileika og kynjarannsókna, býður til fundaraðar um kynja- og margbreytileikasjónarmið á Kvennaári. Í þetta sinn er sjónum beint að áherslum Kvennaárs um vanmat á kvennastörfum og launajafnrétti, og verða kynntar niðurstöður rannsóknar á launaójöfnuði kvenna og hvernig sá ójöfnuður birtist í líðan [...]

  • Konur af erlendum uppruna og feminísma á Íslandi – hvað so?

    Hannesarholt Reykjavík, Iceland

    Í tilefni af 50 ára afmæli Kvennaverkfallsins varpar þessi viðburður ljósi á sögu, reynslu og framtíðarsýn kvenna af erlendum uppruna innan íslensks femínisma. Dagskráin hefst á erindi sem ræðir framlag kvenna af erlendum uppruna til Kvennafrís og femínískrar baráttu frá árinu 1975 til dagsins í dag. Að því loknu tekur [...]

    Free
  • VIÐ ERUM MARGAR – 50 ára afmælissýning Kvennasögusafns Íslands

    Landsbókasafn, Þjóðarbókhlaðan

    VIÐ ERUM MARGAR er sýning á safnkosti Kvennasögusafns Íslands, sem haldin er í tilefni af 50 ára afmæli safnsins. Þema sýningarinnar er félög, vinna og verkföll kvenna. Opnun hennar fer fram á Landsbókasafni föstudaginn 17. október 2025, kl. 15-17. Ávörp og veitingar. Kvennasögusafn var stofnað 1. janúar 1975 á heimili [...]

  • Kosmískt Skítamix

    Tjarnarbíó Tjarnargata 12, Reykjavík, Iceland

    Hljómsveitin Eva var einu sinni up and coming framúrstefnu hljómsveit og sviðslistahópur en þarf nú að horfast í augu við raunveruleikann; andleg veikindi, dauðann, adhd greiningar, snemmbúið breytingaskeið og þá staðreynd að þær hafa ekki samið nýtt lag í fimm ár. Nú bretta þær upp ermarnar og segja fólkinu frá [...]

  • Af vinnukonum á átjándu og nítjándu öld

    Þjóðarbókhlaða, fyrirlestrasalur á 2. hæð

    Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing undir yfirskriftinni Af vinnukonum á átjándu og nítjándu öld í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð, laugardaginn 18. október 2025. Málþingið hefst kl. 13:30 og því lýkur eigi síðar en kl. 16:15. Flutt verða fjögur erindi sem hér segir: Kvenfólksvinna – eða hvað? Um [...]

  • Móðir, kona, meyja

    Amtsbókasafnið á Akureyri

    Í tilefni kvennaárs verður sýnt brot úr verkinu Móðir, kona, meyja, eftir Umskiptinginn Sesselíu Ólafs, en verkið fjallar um þrjár konur sem þekkjast ekki en hittast í bústað til þess að lesa. Þær eru á ólíkum aldri, ein nýlega útskrifuð úr menntaskóla, ein að nálgast fertugt og ein um sextugt. [...]

  • Kona forntónlistarhátíð: Frumkvöðlar strengjakvartettsins

    Þjóðminjasafn Íslands Suðurgötu 41

    Forntónlistarhátíðin Kona verður haldin í fjórða sinn í október og að þessu sinni á Þjóðminjasafni Íslands. Að hátíðinni stendur Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk, í samstarfi við Þjóðminjasafnið og styrkt af Tónlistarsjóði. Hátíðin samanstendur af þrennum tónleikum og leiðsögnum um grunnsýningu safnsins „Þjóð verður til“. Ólíkir munir og saga verða í brennidepli á [...]

  • „Ég vild’ég væri Pamela í Dallas“

    "Ég vild´ég væri Pamela í Dallas" Bókasafn Héraðsbúa | 19. október kl. 15:00 - 17:00 Fram koma: Gréta Sigurjónsdóttir úr hljómsveitinni Dúkkulísurnar, Halla Kristjánsdóttir úr hljómsveitinni Without the balls og Ína Berglind Guðmundsdóttir tónlistarkona og nemi í ME. Flutt verða lög frá ýmsum tímabilum, textarnir verða síðan lesnir upp til [...]

  • Bókmenntaganga saga og raddir kvenna

    Borgarbókasafn Kringlunni

    Almenningsbókasöfn um land allt sameina krafta sína undir merkjum verkefnisins Læsi á stöðu og baráttu kvenna í tilefni af Kvennaári 2025. Kvenréttindafélag Íslands og Borgarbókasafnið leiddu saman hesta sína með bókmenntagöngu sem verður svo aðgengileg til láns á bókasöfnunum. Galdurinn við þessa göngu er að hún þarf ekki eiginlegan leiðsögumann [...]

  • KVENNAVERKFALL I Gluggasýning í Hafnarstræti 88 Í tilefni af 50 ára afmæli kvennafrídagsins 1975-2025

    Hafnarstræti 88, Akureyri Akureyri, Iceland

    GLUGGINN í vinnustofu Brynju í Hafnarstræti 88, miðbæ Akureyrar, er kominn í kvennaverkfall. Glugginn sýnir svipmynd af heimili. Húsmóðirin sem vinnur líka í frystihúsinu hefur lagt niður störf og skundað í mótmælagöngu í tilefni dagsins 24.október 1975. Hún vill jafnrétti kynjanna, að kvennastörf séu metin að verðleikum og að laun [...]

  • WIFT Kvennaárs bíósýning – Hvað er svona merkilegt við það

    Bíó Paradís Hverfisgata 54, Reykjavík, Iceland

    WIFT Íslandi, félag kvenna í kvikmyndum og sjónvarpi verður með Kvennaárs sýningu á myndinni Hvað er svona merkilegt við það eftir Höllu Kristínu Einarsdóttur þann 20. október, klukkan 19:00 í Bíó Paradís. Eftir sýninguna mun Halla Kristín Einarsdóttir segja frá gerð myndarinnar og svara spurningum úr sal. ,,Hvað er svona [...]

  • Kona að störfum – kvikmyndasýning

    Þjóðminjasafn Íslands Suðurgötu 41

    Í tilefni af 50 ára afmæli Kvennafrídagsins standa Þjóðminjasafn Íslands, Kvikmyndasafn Íslands og Kvennasögusafn Íslands fyrir kvikmyndasýningu og fyrirlestri sem ber yfirskriftina Kona að störfum. Viðburðurinn fer fram í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins, á 1. hæð safnsins, þriðjudaginn 21. október, kl. 12-13. Á kvikmyndasýningunni Kona að störfum, verða sýnd einstök kvikmyndabrot af [...]

  • Kennslukonur í Húnavatnssýslum: frá Húsmæðraskólanum á Ytri – Ey til Kvennaskólans á Blönduósi

    Bókasafn A-Hún á Blönduósi

    Almenningsbókasöfn um land allt sameina krafta sína undir merkjum verkefnisins ,,Læsi á stöðu og baráttu kvenna" í tilefni af Kvennaári 2025. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með lestur, samveru og lestrarupplifun í forgrunni. Í A-Hún verður í boði þemavika á bóka- og skjalasafninu 17. -24. október og ljósmyndasýning þriðjudaginn [...]

  • Áfram stelpur! í 50 ár

    Hannesarholt Grundarstígur 10, Reykjavík, Iceland

    Á fimmtíu ára afmæli hins sögulega kvennafrís árið 1975 koma leikkonur á öllum aldri saman og flytja kraftmikla dagskrá í tali og tónum í Þjóðleikhúskjallaranum. Leikkonur sem tóku þátt í söngdagskrá á Lækjartorgi á kvennafrídeginum 24. október 1975 og sendu frá sér hina geysivinsælu hljómplötu Áfram stelpur mynda kjarnann í [...]

  • Kvenréttindabaráttan: Listasýning

    Nemendur Hvolsskóla verða með sýningu á listaverkum tengdum Kvenréttindabaráttunni á Íslandi Viðburðurinn er einn af fjölmörgum viðburðum undir merkjum verkefnisins "Læsi á stöðu og baráttu kvenna" sem er samstarfsverkefni almenningsbókasafna á Íslandi í tilefni af Kvennaári 2025. Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði.

  • Kröfur ungra kvenna og kvára á Kvennaári

    Hitt húsið Rafstöðvarvegi 7-9, Reykjavík

    Femme Empower hópurinn á Íslandi í samstarfi við LAUFEY, Ungmennaráð Kvenréttindafélags Íslands, kynnir kröfur ungra kvenna og kvára á Kvennaári. Fundurinn er haldinn í tengslum við verkefnið Femme Empower sem er styrkt af Evrópusambandinu (ESB) og fer fram í fimm Evrópulöndum: Íslandi, Litháen, Portúgal, Póllandi og Rúmeníu. Innan verkefnisins fór [...]

  • SÆHJARTA: Sögur umbreytingar

    Sláturhúsið Menningarmiðstöð, Egilsstaðir

    Verkefnið býr til styðjandi rými þar sem konur af erlendu bergi brotnar geta deilt persónulegum sögum og tjáð sig á skapandi hátt. Aðalatriðið eru sögustundir, samsýning sem deilir reynslu þátttakenda og brúðuleikhússýning um sjálfsmynd og þrautseigju.

  • Réttindabarátta á tímamótun: Hvað getur þú gert?

    Mannréttindahúsið Sigtúni 42

    Gríptu hljóðnemann (open mic) í Mannréttindahúsinu þegar við ræðum um stöðu jafnréttisbaráttunnar í tilefni af 50 ára afmæli kvennafrídagsins 1975. Hvert gæti þitt hlutverk orðið í baráttunni? Mannréttindahúsið býður upp á opinn hljóðnema fimmtudaginn 23. október klukkan 10:00 í samstarfi við UN Women á Íslandi, Landssamband ungmennafélaga, Félag Sameinuðu þjóðanna [...]

  • Kukl í Kringlunni | Fögnum spákonum

    Borgarbókasafnið Kringlunni Kringlan, Reykjavík, Iceland

    Ertu að spá í hvað þú vilt gera á hrekkjavökunni? Á þessu kvennári viljum við fagna spákonum, völvum, nornum og alls kyns galdrakvendum með viðburði þeim til heiðurs. Elísabet Skagfjörð leikkvár og kuklaðdáandi kemur og les tarot fyrir gesti og gangandi. Það verður sögustund fyrir yngstu börnin og föndur fyrir [...]

  • Kvennakraftur í Kópavogi | Læsi á stöðu og baráttu kvenna

    Fimmtudaginn 23. október verður haldið málþing á Bókasafni Kópavogs til heiðurs þremur öflugum konum sem störfuðu og/eða bjuggu í Kópavogi, þeim Huldu Dóru Jakobsdóttur, Gerði Helgadóttur og Ástu Sigurðardóttur. Fundarstjóri er Arndís Þórarinsdóttir. ,,Í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá því að konur á Íslandi lögðu niður launuð [...]

  • Skiltagerð í Netagerðinni á Ísafirði

    Netagerðin á Ísafirði

    Föstudaginn 24. október leggja konur og kvár niður störf og skunda í kröfugöngu. Til að koma skilaboðum okkar enn betur á framfæri verður boðið til skiltagerðar í Netagerðinni fimmtudaginn 23.október á milli 17 og 19. Það verður einhver efniviður á staðnum en svo má líka taka með sér Vinsamlegast gangið [...]

  • Seigla og baráttuandi til framtíðar – fjáröflunarkvöld WomenTechIceland

    Hafnar.haus Tryggvagata 17, Reykjavík, Iceland

    Fjáröflunarviðburður WomenTechIceland verður haldinn í aðdraganda 50 ára afmælis Kvennaverkfallsins. Kvöldið er tileinkað því að fagna samstöðu, efla baráttuanda og styrkja tengslanetið. Búið verður til tímahylki þar sem safnað verður saman gögnum, efni, ljósmyndum og öðru sem tengist jafnréttisbaráttu kvenna, með áherslu á tæknigeirann. Á dagskrá verða erindi frá fólki [...]

  • Ung, há, feig og ljóshærð; hvunndagshetjan Auður Haralds

    Safnhús Borgarfjarðar Bjarnarbraut 4-6, Borgarnes

    Skáldkonan Auður Haralds var þekktust fyrir kaldhæðnar lýsingar á mönnum og málefnum, sem stundum féllu í grýttan jarðveg samtímans. Ekki síst vegna þess að hún nýtti húmorinn óspart til að gera grín að ýmsum samfélagsmeinum sem sérstaklega snéru að konum. Hlaðvarpið Myrka Ísland bregður sér í feminískan búning og breytir [...]

  • KÍTÓNleikar í Iðnó

    Iðnó Vonarstræti 3, Reykjavík, Iceland

    Nýkjörin stjórn KÍTÓN býður öllum að fagna íslenskum konum í tónlist á sérstökum tónleikum þann 23.október í Iðnó. Í ljósi sífellrar umræðu um skort á sýnileika kvenna í íslensku tónlistarsenunni hefur KÍTÓN sett á laggirnar 5 lagalista sem innihalda einungis tónlist með konur og kvár á kredit-listanum. Lagalistarnir birtast á [...]

  • Söltuð Píka í strætó

    Strætóskýli víða um miðbæ Reykjavíkur Reykjavík, Iceland

    SÖLTUÐ PÍKA – Tölfræði og tilfinningar kvenna og kvára í grafískri hönnun á Íslandi Söltuð píka var áhrifarík sýning á Hönnunarmars sl. sem varpaði ljósi á upplifun kvenna og kvára í grafískri hönnun á Íslandi. Sýningin sameinar frásagnir, uppbyggilegar setningar og pepp fyrir konur og kvár sem eru ný í [...]

  • Kvennaverkfall // Dalvík

    Menningarhúsið Berg Goðabraut, Dalvík, Iceland

    Stundin er runnin upp! Konur og kvár ganga út frá sínum störfum kl 13:00 og hittast á Menningarhúsinu Bergi á Dalvík. Sýnt verður frá beinu streymi frá baráttufundi á Arnarhóli. Boðið upp á kaffi á meðan á samsæti stendur! Opið fyrir umræður og spjall og hægt að taka til máls [...]

  • Konukraftur í ‘hafmeyjum’ á Tröllaskaga

    Þetta er fullkominn dagur til að fagna kvenmættinum. Við byrjum hann á því að fara saman í sjóbað – vonandi náum við líka að koma með bráðabirgða heitan pott á ströndina. Ef þig langar bara að kíkja og fílar ekki að kafa, þá ert þú samt velkomin.

  • Nútíma kvennabarátta – Staða kvenna af erlendum uppruna á vinnumarkaði

    Kaldalóni í Hörpu

    Nú eru liðin 50 ár frá kvennafrídeginum 1975, þegar konur í landinu lögðu niður störf til að krefjast jafnréttis. Þá minnti verkalýðsleiðtoginn Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir okkur á að kvennabaráttan ætti að snúast um að lyfta þeim sem lægst stæðu í samfélaginu. Í dag eru það konur af erlendum uppruna sem bera [...]

  • Kvennaverkfall // Fjallabyggð

    Síldarkaffi Siglufirði, Iceland

    Í ár eru liðin 50 ár frá fyrsta kvennafrídeginum og af því tilefni hittumst við á Síldarkaffi og fögnum baráttu og ávinningi kvenna á Íslandi i hálfa öld.

  • Barmmerkjasmiðja – Áfram konur

    Ljósmyndasafn Reykjavíkur

    Verið velkomin í barmmerkjasmiðju á Ljósmyndasafni Reykjavíkur í tilefni af 50 ára afmæli Kvennafrídagsins föstudaginn 24. október kl. 11-13. Ókeypis inn og öll velkomin! Í Skoti Ljósmyndasafnsins stendur nú yfir sýning um Kvennafrídaginn 24. október 1975. Þá lögðu konur niður launuð sem ólaunuð störf sín og stöðvuðu þannig samfélagið. Síðan [...]

  • Kvennaverkfall // Akureyri

    Ráðhústorg Akureyrar Akureyri, Iceland

    Við mætum þar til við þurfum ekki að mæta lengur! Við hvetjum konur og kvár til þess að sýna samstöðu með því að fjölmenna á baráttufund á Ráðhústorgi þann 24. október kl. 11:15 Við sameinumst og tökum höndum saman í baráttunni fyrir því að stjórnvöld efni kröfur Kvennaárs. Tónlistaratriði, ræður [...]

  • Kvennaverkfall // Hrísey

    Hríseyjarbúðin Hrísey, Iceland

    Í tilefni af Kvennaverkfalli þann 24. október nk. efnir Kvenfélag Hríseyjar til hópgöngu frá Hríseyjarbúðinni klukkan 11:15 fyrir þau sem ekki komast á baráttufundinn sem haldinn er á Akureyri á sama tíma. Minnum alla á að klæða sig eftir veðri. Genginn verður hringur í þorpinu.

  • Kvennaverkfall // Reykjanesbær

    Aðalsafn Bókasafn Reykjanesbæjar - Hljómahöll Reykjanesbæ, Iceland

    Föstudaginn 24. október kl. 11.30. Konur og kvár eru beðin um að taka daginn frá. Boðið verður til peppsamkomu í Bókasafni Reykjanesbæjar áður en förinni verður heitið á Arnarhól. Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, sviðsstýra fjölskyldusviðs sveitarfélagsins Voga, mun stýra dagskránni. Ræðukonur verða: Helga Margrét, tómstunda og félagsmálafræðingur. Inga Dóra Jónsdóttir, teymisstýra [...]

  • Aðfluttar kvenraddir: Vendipunktar

    Kaldalóni í Hörpu (hluti af málþingi um konur af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði)

    Vendipunktar segir frá konum sem hafa sest að á Íslandi á meira en 1000 ára tímabili, hafa yfirgefið önnur lönd til þess að gera Ísland að heimili sínu – vegna ástar, í leit að öryggi og stundum án þess að eiga annarra kosta völ. Með aðstoð ýmissa miðlunartækja munum við [...]

    Free
  • Helgistund í Dómkirkjunni

    Dómkirkjan

    Félag prestvígðra kvenna býður til helgistundar í Dómkirkjunni á Kvennafrídegi kl. 13. Söngur, hugleiðingar og bænir áður en haldið er í Sögugönguna frá Hljómskálagarðinum

  • Kvennaverkfall // Söguganga og útifundur á Arnarhóli

    Ísland

    Stundin er runnin upp – 24. október 2025 Söguganga um merka áfanga í íslenskri kvennabaráttu Kl. 13:30 – 14:45 // Sóleyjargata, Fríkirkjuvegur og Lækjargata Byrjar við hornið á Sóleyjargötu og Njarðargötu og endar á Lækjartorgi. Á leiðinni verða atriði, gjörningar, list, leikur, spuni, uppistand, baráttusamtök og söngur á mismunandi stöðum [...]

  • Kvennaverkfall // Snæfellsbær

    Sker Ólafsvík, Iceland

    Stundin er runin upp! Konur og kvár ganga út frá sínum störfum kl 13:00 og hittast á Skeri í Ólafsvík kl 13:30. Kvennabaráttan verður rædd og hægt verður að kaupa sér veitingar og horft á beint streymi frá baráttufundi á Arnarhóli. Áfram konur og kvár!

  • Kvennaverkfall // Egilsstöðum

    N1 og Valaskjálf Egilsstaðir, Iceland

    13:30 Kröfuganga frá N1 Egilsstöðum 14:00 Dagskrá í Valaskjálf Á viðburðinum í Valaskjálf koma fram þær Ilinca Anton, Hjördís Helga Seljan, Anna Sigrún Jóhönnudóttir og Berglind Sveinsdóttir. Tónlistarkonurnar Ína Berglind og Bergljót Halla stíga á svið. Videoviðtöl við grunn- og menntaskólanemendur framleidd af Öglu Eik Frostadóttur og Elínu Eik Guðjónsdóttur. [...]

  • Women´s Strike // Egilsstöðum

    N1 og Valaskjálf Egilsstaðir, Iceland

    13:30 March from N1 Egilsstaðir 14:00 Program at Valaskjálf At the event in Valaskjálf, Ilinca Anton, Hjördís Helga Seljan, Anna Sigrún Jóhönnudóttir, and Berglind Sveinsdóttir will perform. Musicians Ína Berglind and Bergljót Halla will take the stage. Video interviews with primary and secondary school students produced by Agla Eik Frostadóttir [...]

  • Austurland // Samstöðufundur

    13:30 Kröfuganga frá N1 Egilsstöðum 14:00 Dagskrá í Valaskjálf Á viðburðinum í Valaskjálf koma fram þær Ilinca Anton, Hjördís Helga Seljan, Anna Sigrún Jóhönnudóttir og Berglind Sveinsdóttir. Tónlistarkonurnar Ína Berglind og Bergljót Halla stíga á svið. Videoviðtöl við grunn- og menntaskólanemendur framleidd af Öglu Eik Frostadóttur og Elínu Eik Guðjónsdóttur. [...]

  • Kvennafall 2025 // Ísafjörður

    Silfurtorg Ísafjörður, Iceland

    50 ár eru liðin frá Kvennafrídeginum 1975 og baráttunni er ekki lokið. Tilkynningum um ofbeldi fjölgar, launamunur kynjanna eykst og það er misrétti í verkaskiptingu heima fyrir. Jafnrétti er ekki í augsýn. Nú förum við í Kvennaverkfall. Við mætum og fáum innblástur. Við ætlum að breyta samfélaginu saman. Fyrir okkur, [...]

  • Kvennaverkfall // Höfn

    Heppa veitingastaður Heppuvegur 6, Höfn í Hornafirði, Iceland

    STUNDIN ER RUNNIN UPP! Kvennaverkfall 2025 - Höfn - 24. október 50 ár eru liðin frá Kvennafrídeginum 1975 og baráttunni er ekki lokið. Tilkynningum um ofbeldi fjölgar, launamunur kynjanna eykst og það er misrétti í verkaskiptingu heima fyrir. Jafnrétti er ekki í augsýn. Nú förum við í Kvennaverkfall. Við mætum [...]

  • Hennar Rödd

    Menningarhúsið Berg Goðabraut, Dalvík, Iceland

    This participatory workshop provides safe space for women and nonbinary people (not only of foreign origin) to: - discuss necessary actions and accountability that we want to call for in our little communities so that all be secured the same rights - to reflect on concrete elements on our society [...]

  • Kvennaverkfall // Breiðamýri

    Breiðamýri Reykjadal

    Fjölbreytt skemmtidagskrá í höndum þingeyskra kvenna og kvára sem leiða saman krafta sína og hræra saman kraftmikla blöndu,sem samanstendur af krafti, gleði og samstöðu. Ásta Flosadóttir flytur hvatningarræðu Ásta Kristín Benediktsdóttir - „Fær Bína í Garði verðlaun Norðurlandaráðs?“ Umfjöllun um Jakobínu Sigurðardóttir (1918–1994) rithöfund Ester Hilmarsdóttir les úr bók sinni [...]

  • Kvennaverkfall 2025 – Stykkishólmi

    Amtsbókasafnið Stykkishólmi, Iceland

    Stundin er runnin upp! Konur og kvár ganga út frá sínum störfum kl 14:00 og hittast á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi.  Áfram konur og kvár Dagskrá: Ragnheiður Valdimarsdóttir les bréf /erindi sem Dagbjört Höskuldsdóttir flutti á Kvennafrídaginn 24. Október 2005. Unnur Breiðfjörð Samsöngur á laginu „Áfram stelpur“ Unnur Valdimarsdóttir Helga Guðmundsdóttir [...]

  • Kvennaverkfall // Vík

    Syngjandinn (Kjallarinn) og Reynisfjall Vík, Iceland

    Allar sem vilja eru velkomnar í PÁLÍNUBOÐ á Syngjandanum á föstudaginn klukkan 14-16 þar sem við munum setjast niður og eiga notalega stund saman. Spjalla, kynnast og e.t.v. deila sögum. Og aftur erum við með plan B og færum okkur yfir í Kjallarann í Suður-Vík ef það verður of hryssingslegt [...]

  • Kvennaverkfall // Stykkishólmur

    Amtsbókasafnið Stykkishólmi, Iceland

    Stundin er runnin upp! Konur og kvár ganga út frá sínum störfum kl 14:00 og hittast á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi. Farið verður yfir sögu kvennabaráttunnar hér í Stykkishólmi með frásögnum nokkurra kvenna, boðið uppá kaffi og horft á beint streymi frá baráttufundi á Arnarhóli. Áfram konur og kvár

  • Kvennaverkfall // Bíldudalur

    Vegamót Tjarnarbraut 2, Bíldudal, Iceland

    STUNDIN ER RUNNIN UPP! Kvennaverkfall 2025 - Bíldudalur - 24. október 50 ár eru liðin frá Kvennafrídeginum 1975 og baráttunni er ekki lokið. Tilkynningum um ofbeldi fjölgar, launamunur kynjanna eykst og það er misrétti í verkaskiptingu heima fyrir. Jafnrétti er ekki í augsýn. Nú förum við í Kvennaverkfall. Við mætum [...]

  • Kvennaverkfall // Selfoss

    Hótel Selfoss Selfoss, Iceland

    Konur! Tökum höndum saman í tilefni af kvennaverkfalli 2025 og mætum á útifund á Arnarhóli.   Kl. 14:00   Rúta fer frá Hótel Selfossi til Reykjvíkur Kl. 17:00   Brottför frá Reykjavík til Selfoss þar sem boðið er upp á búbblur. kl. 19:00   Bíóhúsið Selfossi - The Day that Iceland Stood Still [...]

  • Kvennaverkfall // Patreksfjörður

    Skjaldborgarbíó Patriksfirði, Iceland

    Föstudaginn 24. október 2025 eru konur og kvár hvött til að leggja niður launuð sem ólaunuð störf allan daginn eins og konur gerðu árið 1975. Kvenfélagið Sif á Patreksfirði var á þessum degi árið 1915 stofnað og fagnar því 110 ára afmæli sínu. Kvenfélagið Sif býður því öllum í Skjaldborgarbíó [...]

  • Kvennafrí- Ljós og læti í Litlu netagerðinni

    Litla Netagerðin Aðalstræti 16, Ísafjörður

    KVENNAFRÍ - Ljós og læti í Litlu Netagerðinni Sara Hrund Signýjardóttir syngur fyrir okkur ljúfa tóna, búðin verður lýst upp með skemmtilegum lömpum úr lampa safni Netagerðar kvenna og boðið verður upp á góðgæti og búbblur. Hlökkum til að sjá ykkur. Viðburðurinn er styrktur af viðburðasjóði Ísafjarðarbæjar

  • Norður Írland – Ísland í Kvennaverkfalli

    Nína bar Hverfisgötu 20, RVK

    Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna ætla að styðja konur og kvár með áhorfspartýi á barnum Nínu þegar íslenska landsliðsins í knattspyrnu spilar á móti Norður Írlandi á útivelli. Þetta er fullkominn tími til að koma saman og hvetja stelpurnar og ræða baráttu íþróttakvenna á Íslandi.

  • Þori, get og vil – Graduale Nobili

    Harpa Austurbakka 2, Reykjavík, Iceland

    Graduale Nobili heldur tónleika í Hörpuhorni í tilefni Kvennaárs 2025. Á efnisskrá eru fjölbreytt kórverk eftir Jórunni Viðar, Mist Þorkelsdóttur, Báru Grímsdóttur, Hildigunni Rúnarsdóttur, Eygló Höskuldsdóttur Viborg og fleiri. Stjórnandi kórsins er Sunna Karen Einarsdóttir. Tónleikarnir eru um ein klukkustund, án hlés. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin. Kórinn [...]

  • Kvennaverkfall // Vík

    Syngjandinn (Kjallarinn) og Reynisfjall Vík, Iceland

    Allar sem vilja eru velkomnar í PÁLÍNUBOÐ á Syngjandanum á föstudaginn klukkan 14-16 þar sem við munum setjast niður og eiga notalega stund saman. Spjalla, kynnast og e.t.v. deila sögum. Og aftur erum við með plan B og færum okkur yfir í Kjallarann í Suður-Vík ef það verður of hryssingslegt [...]

  • Áfram stelpur! í 50 ár

    Hannesarholt Grundarstígur 10, Reykjavík, Iceland

    Á fimmtíu ára afmæli hins sögulega kvennafrís árið 1975 koma leikkonur á öllum aldri saman og flytja kraftmikla dagskrá í tali og tónum í Þjóðleikhúskjallaranum. Leikkonur sem tóku þátt í söngdagskrá á Lækjartorgi á kvennafrídeginum 24. október 1975 og sendu frá sér hina geysivinsælu hljómplötu Áfram stelpur mynda kjarnann í [...]

  • Konur

    Félagsheimilið Hvoll Hvolsvelli

    Konur flytja tónlist eftir konur eða um konur

  • quean : kven : queen

    quean : kven : queen er nýtt verk úr smiðju tónlistarkonunnar Sóleyjar Stefánsdóttur og leikstjórans Samantha Shay. Sóley og Samantha hafa lengi unnið saman í gegnum tónlist, kvikmyndir og dans og hefur samstarf þeirra síðustu ára litast meðal annars af brennandi áhuga þeirra á viðfangsefnum kvenna (vist-femínisma) og jarðarinnar og [...]

  • Elskan, er ég heima? Umræður eftir sýningu

    Samkomuhúsið á Akureyri

    Eftir sýningu á leikverkinu, Elskan, er ég heima? er boðið upp á umræður í tilefni Kvennafrídagsins með Ilmi Kristjánsdóttur, leikstjóra ásamt leikhópnum

    7900kr.
  • The Female Edit: Rising in Women’s Health

    Harpa Austurbakka 2, Reykjavík, Iceland

    Konur eru þess virði The Female Edit: Rising in Women’s Health er fyrsta alþjóðlega ráðstefnan um heilsu kvenna á Íslandi, haldin í hjarta Reykjavíkur. Þetta er dagsviðburður fyrir konur sem vilja ná tökum á eigin heilsu og vellíðan. Hér gefst tækifæri til að hlusta á innlenda og erlenda sérfræðinga, öðlast [...]

  • Alþingi býður í heimsókn

    Austurvöllur og Tjarnargata 9

    Almenningi er boðið að skoða Alþingishúsið og Smiðju laugardaginn 25. október í tilefni af Kvennaári 2025. Boðið verður upp á leiðsögn í Alþingishúsinu kl. 11–16. Hleypt er inn á 20 mínútna fresti, hámark 35 manns í senn, og tekur hver leiðsögn 30 mínútur. Gengið er inn í Skála, við hlið [...]

  • 90’s kvennarokk á Lemmy

    90's kvennarokk verður í aðalhlutverki á Lemmy þann 25.október næstkomandi. Lög frá Skunk Anansie, The Cranberries, Alanis Morisette , No doubt , Hole, Sinéad O’Connor, K’s Choice, Portishead og fleiri tónlistarkonum munu heyrast kröftuglega og lyfta aðeins þakinu frá. Hljómsveitin: - Aldís Fjóla - Söngur - Kristófer Nökkvi Sigurðsson - [...]

  • Konur á rauðum sokkum

    Árið 2025 eru liðin 50 ár frá því að konur á íslandi lögðu niður launuð sem ólaunuð störf sín og stöðvuðu þannig samfélagið. Af því tilefni verður kvikmyndin KONUR Á RAUÐUM SOKKUM sýnd í Félagbíói í Aðalsafni Bókasafns Reykjanesbæjar sunnudaginn 26. október. Myndin fjallar um hina íslensku rauðsokkahreyfingu sem starfaði [...]

  • Bíótekið: Hvað er í blýhólknum

    Bíó Paradís Hverfisgötu 54, 101 Reykjavík

    Kvikmyndasýning í Bíótekinu í Bíó Paradís. Hvað er í blýhólknum (1971), er magnað ádeiluverk eftir Svövu Jakobsdóttur og fjallar um dæmigerða nútímakonu og hvernig ágeng samfélagsgerð heimtar yfirráð örlaga hennar. Vera Sölvadóttir, kvikmyndagerðarkona og Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona stjórna spjalli við áhorfendur að sýningu lokinni. Sýningin er á vegum Kvikmyndasafns Íslands, [...]

    1290kr.
  • Kynja- og margbreytileikasjónarmið á Kvennaári: Viðbrögð við ofbeldi frá sjónarhorni innflytjendakvenna

    Kynjafræði við Stjórnmálafræðideild, í samvinnu MARK – Miðstöð margbreytileika og kynjarannsókna, býður til fundaraðar um kynja- og margbreytileikasjónarmið á Kvennaári. Í þetta sinn er sjónum beint að áherslum Kvennaárs um kynbundið ofbeldi og verða kynntar niðurstöður rannsóknar á félagslegum og kerfislægum innviðum til að bregðast við ofbeldi í nánum samböndum [...]

  • Efast á kránni – Feðraveldið í fortíð, nútíð og framtíð

    Hús Máls & Menningar, Laugavegi

    Siðmennt stendur fyrir reglulegum afslöppuðum spjallviðburðum þar sem við getum komið saman og rætt stóru spurningarnar í afslöppuðu umhverfi og góðum félagsskap. Að þessu sinni er þemað Feðraveldið, fortíð þess og framtíð. María Hjálmtýsdóttir, kennari, aktívisti og barnabókasafnari, verður með erindið Feðraveldið, fortíð, nútíð, framtíð. Í erindinu ætlar hún að [...]

  • Afmælishátíð : Kvennasögusafn á tímamótum

    Landsbókasafn, Þjóðarbókhlaðan

    Verið hjartanlega velkomin á afmælishátíð Kvennasögusafns í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðunnar, föstudaginn 5. desember kl. 13-16. Til að fagna 50 ára afmæli Kvennasögusafns er efnt til afmælishátíðar á afmælisdegi Önnu Sigurðardóttur, 5. desember. Þá verða fluttir örfyrirlestrar um fjölbreytt efni sem tengist bæði safninu og kvennasögu. Léttar veitingar að lokinni dagskrá. Dagskrá: [...]

  • Í þágu okkar allra – karlar gegn kynbundnu ofbeldi

    Edda, Háskóli Íslands

    Þann 10. desember 2025 kl. 12-13.30 í fyrirlestrasal Eddu verður haldið málþing með dr. Stephen Burrell, lektor í kynjafræði og afbrotafræði við Melbourne háskóla í Ástralíu um hvernig megi virkja karla í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Burrell hefur stundað rannsóknir á kynbundnu ofbeldi um árabil og birt um það greinar, [...]

  • Velkomin til Gilead!

    Þjóðminjasafn Íslands Suðurgötu 41

    Málþing Kvenréttindafélags Íslands, RIKK – Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum við HÍ og UN Women á Íslandi um kyn- og frjósemisréttindi á tímum öfgahyggju. Alþjóðlegi mannréttindadagurinn er haldinn þann 10. desember ár hvert og markar hann lok 16 daga átaksins gegn kynbundnu ofbeldi. Af því tilefni efna Kvenréttindafélag Íslands, RIKK – Rannsóknastofnun [...]