Samstaða og barátta kvenna af erlendum uppruna
Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi voru stofnuð á Kvennafrídeginum, þann 24. október 2003, á Hallveigarstöðum í Reykjavík, þar sem félagið er til húsa ásamt fleiri kvennasamtökum. Félagið er aðildarfélag Kvenréttindafélags Íslands.
Hlutverk samtakanna er að sameina konur sem sest hafa að á Íslandi, takast á við hagsmuna- og áhugamál þeirra og ljá þeim rödd. Markmið samtakanna er að vinna að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna af erlendum uppruna á öllum sviðum þjóðlífsins.
Árið 2005 tóku samtökin í fyrsta skipti opinberlega þátt í Kvennafríinu, ásamt íslenskum konum. Amal Tamimi flutti sögulega barátturæðu fyrir hönd samtakanna þar sem hún sagði: „Konur af erlendum uppruna lifa við tvöfalt misrétti, vegna bæði þjóðernis og kyns“. Árið 2018 hlutu samtökin Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir að hafa staðið að vitundarvakningu um stöðu kvenna af erlendum uppruna á Íslandi, meðal annars með sögum þeirra í tengslum við #metoo-byltinguna. Samtökin berjast áfram fyrir bættri stöðu kvenna af erlendum uppruna, ásamt því að valdefla þær til að taka þátt í þjóðfélaginu á þeirra eigin forsendum.
