Vigdís var fyrsta konan á heimsvísu til að vera lýðræðislega kjörinn forseti
Vigdís Finnbogadóttir var fyrst kvenna í heimi til að vera lýðræðislega kjörinn þjóðhöfðingi árið 1980. Hún hefur sagt að Kvennafrí 1975 hafi rutt veginn að kjöri hennar. Þá hafi konur farið að ræða mikilvægi þess að næsti forseti yrði kona og þannig hafi kastljósið beinst að Vigdísi.
Framboð Vigdísar og kjör spratt þannig upp úr grósku femínísku baráttunnar á 8. áratugnum. Vigdís var ekki bara kona heldur einnig einhleyp móðir og fékk viðbrögð eftir því í kosningabaráttunni. Hún var spurð hvernig hún gæti sinnt starfinu sem einstæð móðir og hvort hún væri hrein mey. Hún var líka spurð hvort það að hún hefði einungis eitt brjóst myndi hafa áhrif á störf hennar sem forseti en Vigdís hafði farið í brjóstnám vegna krabbameins. Svar hennar var: „Það stóð nú aldrei til að hafa þjóðina á brjósti.“
Störf Vigdísar í forsetatíð og eftir að hún lét af embætti hafa verið Íslendingum fyrirmynd og drifkraftur í áframhaldandi baráttu til kynjajafnréttis.
