Verkstjórnin á heimilinu – allt sem þarf að muna og skipuleggja
Konur vinna lengri vinnuviku en karlar, í launuðum og ólaunuðum störfum. Þær sinna frekar heimilisstörfum, umönnun barna og verkstjórn innan heimilisins, svokallaðri þriðju vaktinni. Karlar upplifa hins vegar verkaskiptinguna jafnari en konur. Þannig ríkir dulin misskipting á íslenskum heimilum. Konur hafa almennt lengri vinnutíma en karlar, ef talin eru saman launuð og ólaunuð störf.
Það er eitt að annast börn, vinna húsverk og önnur störf sem tengjast heimilishaldi. Það er annað að hafa þau stanslaust í huga sér; hafa yfirsýn og muna hvað vantar, bera ábyrgð á og skipuleggja daglegt heimilislíf og dagskrá fjölskyldunnar og hugsa fyrir því sem þarf að gerast til að allt gangi upp. Þetta er þriðja vaktin, sem konur sinna í mun meira mæli en karlar. Vaktin felur meðal annars í sér að skrá börn í frístundir og kaupa viðeigandi búnað eða fatnað, bóka tannlæknatíma, skipuleggja afmælisgjafir, fylgjast með upplýsingum frá skólum barnanna, ákveða kvöldmatinn og önnur innkaup, hafa í huga hvað fer í leikskólatöskuna og hvort föt séu í réttum stærðum, huga að nánum ættingjum og svo mætti lengi telja. Þrátt fyrir að slík vinna sé tímafrek, erfið og stöðug og grundvöllur hvers heimilis er hún afar vanmetin. Nýleg íslensk rannsókn bendir til að misskipt þriðja vakt sé svo útskýrð og réttlætt með því að um sé að ræða persónulegt fyrirkomulag og eðlislæga eiginleika kvennanna sjálfra, jafnvel vankanta, þær séu til dæmis bara svo stjórnsamar.
Fjölmargir einstæðir foreldrar eru einir um að standa aðra og þriðja vaktina á sínu heimili. Að miklum meirihluta til eru það mæður. Eins og áður var nefnt er gjarnan litið svo á að ábyrgð á umönnun barna og skipulagning í tengslum við börn hvíli hjá mæðrum en sé valkvæðari hjá feðrum. Það viðhorf viðhelst gjarnan eftir sambandsslit og endurspeglast í fjölda „valkvæðra feðra“ sem velja að að annast börnin sín lítið sem ekkert eða „velja“ hversu mikil umönnunin er og hvaða verkefnum þeir sinna.
Þriðja vaktin var valin orð ársins árið 2022.
