Samtökin ’78 – Félag hinsegin fólks á Íslandi
Samtökin ’78 voru stofnuð árið 1978 sem vettvangur fyrir félagslíf og réttindabaráttu lesbía og homma. Örfáar konur gengu til liðs við samtökin á upphafsárunum og voru samkynhneigðir karlar ráðandi í starfinu fyrstu árin. Árið 1985 stofnuðu lesbíur því félagið Íslensk-lesbíska sem hafði það markmið að mynda vettvang fyrir félagslíf og réttindabaráttu samkynhneigðra kvenna. Það félag hafði um tíma aðsetur í Hótel Vík þar sem kvennaframboðin og önnur femínísk samtök voru til húsa. Til skamms tíma myndaði Íslensk-lesbíska því brú milli kvennabaráttunnar og réttindabaráttu samkynhneigðra. Þrátt fyrir það virðast lesbíur ekki hafa átt sérstaklega uppi á pallborðið hjá kvennahreyfingunni og upplifðu margar lesbíur útilokun af hálfu annarra kvenna. Félagið lifði ekki lengi og rann að lokum aftur saman við Samtökin ’78. Hitt er þó víst að Íslensk-lesbíska gegndi mikilvægu hlutverki fyrir lesbíur og hinsegin konur því þar gátu þær loks tekið pláss.
Smám saman urðu raddir og hagsmunir kvenna meira ráðandi innan Samtakanna ‘78. Fyrsta konan til að gegna formennsku samtakanna var Lana Kolbrún Eddudóttir (1989–1990 og 1993–1994). Formaður er nú Bjarndís Helga Tómasdóttir og hafa á undan henni sjö aðrar konur gegnt í formennsku fyrir félagið.
Undir lok 20. aldar fóru félagsmenn Samtakanna ’78 að huga að baráttu annarra hópa en lesbía og homma með markvissari hætti. Árið 2010 samþykkti aðalfundur að veita trans fólki aðild að félaginu og við það tækifæri var heiti þess breytt í Samtökin ’78, félag hinsegin fólks á Íslandi. Hinsegin fólk er fjölbreyttur hópur, en á það sameiginlegt að brjóta norm samfélagsins um kynvitund, kynhneigð, kyntjáningu og kyneinkenni. Hinsegin barátta á því margt sameiginlegt með kvennabaráttu, auk þess að stór hluti hinsegin fólks eru konur og kvár. Sömu kerfin og halda konum niðri halda hinsegin fólki niðri. Að vinna gegn hugmyndum samfélagsins um það hvernig fólk eigi að haga lífi sínu út frá kyni – og hversu ásættanlegt það telst að fara út fyrir þann þrönga ramma, eru sameiginleg stef kvennabaráttu og hinsegin baráttu.
Samtökin ’78 eru í dag stærstu og þekktustu félagasamtök hinsegin fólks á Íslandi og hefur sambandið milli kvennabaráttunnar og hinsegin samfélagsins tekið miklum breytingum frá því á 9. áratugnum. Djúpur skilningur hefur myndast á því að frelsi kvenna, kvára og hinsegin fólks er tengt órofa böndum og að ekkert okkar er frjálst fyrr en öll eru frjáls. Samstaða er mikilvægari nú en nokkru sinni fyrr.
