Hönnun og handverk kvenna í hundruð ára
Í gegnum aldanna rás hafa konur notað list og handverk til þess að tjá skoðanir sínar — oft í femínískum tilgangi. Frá textílvinnu og handverki, til skúlptúra, myndlistar og stórverka; skapandi listform hafa verið notuð af konum sem leið til þess að taka sér pláss, segja sögur og ögra.
SAMTAKA er útilistaverk. Myndmálið er tekið úr ævagamalli textílhefð — kögri — sem birtist í klæðnaði, húsgögnum og öðrum hönnunarmunum. Verkið er samstarfsverkefni fjölmargra kvenna, og er hengt á milli trjánna á Sóleyjargötunni. Kvenlegt kögrið tengir saman götumyndina og sýnir samtakamátt kvenna. Efnið er almennt talið karllægt; múrlínur í skærum litum sem yfirleitt eru notaðar í byggingarvinnu. Skæru litirnir hafa praktískan tilgang; að vera sýnilegir í annars gráleitu umhverfi. Það er einmitt það sem kvennabaráttan gengur út á; að auka sýnileika kvenna.
