Femínísk baráttuhreyfing kvenna á sjöunda áratugnum
Upphaf Rauðsokkahreyfingarinnar má rekja til 1. maí 1970 þegar konur á rauðum sokkum fjölmenntu í kröfugöngu verkalýðsins í Reykjavík með stóra Venusarstyttu úr leikritinu Lýsiströtu. Konur höfðu fengið nóg af misrétti í launum, körlum sem gerðu ekkert heima fyrir, skorti á barnaheimilum, ótímabærum barneignum og megnri kvenfyrirlitningu. Til varð nánast sjálfsprottin kvennahreyfing sem kom eins og sprengikraftur inn í samfélagið. Þær fengu innblástur sinn frá rauðsokkahreyfingum og baráttuhreyfingum víðs vegar um heiminn og það veitti þeim styrk að skynja að þær væru hluti af alþjóðlegri hreyfingu. Rauðsokkur gáfu meðal annars út tímaritið Forvitin rauð um árabil.
Þegar Sameinuðu þjóðirnar boðuðu Kvennaár 1975 voru Rauðsokkur fremstar í flokki skipuleggjenda á Íslandi. Þær tóku málin föstum tökum með fjölbreyttum viðburðum og settu baráttumál sín þar á dagskrá, til dæmis á láglaunaráðstefnu og ráðstefnu um dagvistunarmál. Þær fylgdu fast eftir kröfum til Alþingismanna um frelsi til þungunarrofs en ný lög voru samþykkt þetta ár sem voru áfangasigur, þótt þau gengju ekki jafn langt og Rauðsokkur höfðu viljað. Hápunktur Kvennaársins var þó heimssögulegur viðburður – Kvennafrí – sem upphaflega var hugmynd Rauðsokkanna. Hugmyndinni um Kvennafrí var ekki bara vel tekið meðal þeirra fjölbreyttu samtaka kvenna og stéttarfélaga sem stóðu að undirbúningi dagsins heldur sýndu íslenskar konur um allt land samstöðu í verki þegar 90% þeirra lögðu niður störf í heilan dag á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október 1975. Þetta varð heimssögulegur viðburður.
Kvennafrídagurinn hafði mikil áhrif á konur, vitundarvakning um kynjamisréttið var öflug en úrbætur gengu hægt. Jafnréttislög voru samþykkt 1976 í samræmi við kröfur Sameinuðu þjóðanna, en þau náðu fyrst og fremst til jafnréttis á vinnumarkaði og auglýsinga. Það var mikið verk að vinna.
Barátta Rauðsokka skilaði okkur auknum réttindum, breytti hugmyndum okkar um réttlæti og gildi samstöðunnar og sýndi okkur að það má vera gaman í baráttunni. Rauðsokkur beittu oft húmor, gjörningum og myndrænni framsetningu. Þær krossfestu t.d. Örþreyttu húsmóðurina á jólatré í Austurstræti á Þorláksmessu, til að vekja athygli á vinnuálagi húsmæðra fyrir jólin, og í annað skipti leiddu þær kúna Perlu inn á fegurðarsamkeppni á Akranesi til að mótmæla hlutgervingu kvenna. Þessi magnaða og aðdáunarverða kvennasamstaða gaf konum frelsi og veitti kvenna- og jafnréttishreyfingum sem á eftir henni komu innblástur.
Eitt af því sem einkenndi baráttuaðferðir Rauðsokkahreyfingarinnar var húmor og hugmyndaauðgi. Í stöðinni um Rauðsokkahreyfinguna í sögugöngunni má sjá endurgerðir af þremur verkum sem Rauðsokkur notuðu í baráttugjörningum á sínum tíma:
Kvígan Perla Fáfnisdóttir
Rauðsokkahreyfingin mótmælti ófáum fegurðarsamkeppnum en árið 1972 reyndu Rauðsokkur að skrá kvíguna Perlu Fáfnisdóttur Blesasonar frá Galtalæk í fegurðarsamkeppni á Akranesi.

Þær krýndu Perlu jafnframt „Miss Young Iceland” með tilheyrandi borða og kórónu fyrir utan Hótel Akranes, þar sem samkeppnin fór fram.
Aðgerðin var beitt ádeila á útlitsdýrkun og hlutgervingu kvenna og hvernig fegurðarsamkeppnir einblína á útlit kvenna fremur en gáfur þeirra, hæfileika og mannkosti.
Rauðsokkur útbýttu líka skoðanakönnun á mótmælunum þar sem spurt var hvort skipti meira máli: „brjóstmál eða brjóstgæði, mjaðmamál eða mannkostir, þyngd eða þolinmæði, fegurð eða félagsþroski”.
Venus
Upphaf Rauðsokkahreyfingarinnar er miðað við 1. maí árið 1970 þegar hópur kvenna kom saman til að taka þátt í verkalýðsgöngunni eftir að hvatning þessi heyrðist í útvarpinu:

Þrátt fyrir andstöðu meðal skipuleggenda göngunnar gekk hópurinn aftast í göngunni. Þær báru stóra styttu af gyðjunni Venus sem á stóð „Manneskja, ekki markaðsvara.“ Styttan var leikmunur úr sýningunni Lýsiströtu, en varð fljótt eitt þekktasta tákn hreyfingarinnar.
Rauðsokkahreyfingin var starfrækt til ársins 1982 og barðist ötullega fyrir kvenréttindum, bættum kjörum kvenna á vinnumarkaði og réttinum til að ráða eigin líkama.
Örþreytta húsmóðirin
Á Þorláksmessu árið 1974 efndu Rauðsokkur til mótmæla í Austurstræti gegn þrælkun kvenna í aðdraganda jóla. Á mótmælunum var hin „örþreytta húsmóðir“ til sýnis, krossfest á jólatré. 
Mótmælin vöktu mikil viðbrögð en Rauðsokkur dreifðu jafnframt miðum sem gagnrýndu umstangið og álagið sem lagt er á konur í aðdraganda hátíðanna. Á miðunum stóð meðal annars
„Við spyrjum í einlægni: Eru þetta okkar jól, eða erum við einnig í þessu að þjóna öflum sem hagnast á ósjálfstæði og forheimskun kvenna?“
Mótmælin voru viðbragð við þeim þrýstingi sem samfélagslegar væntingar og markaðsöflin setja á konur. Þau eiga enn vel við í dag.
