Kvenréttindafélag Íslands

Kvenréttindafélag Íslands er elsta starfandi kvenréttindafélag landsins

Kvenréttindafélag Íslands var stofnað árið 1907.  Upphafleg markmið félagsins voru að tryggja stjórnmálajafnrétti kvenna á við karla, þar á meðal kosningarétt, kjörgengi, og sama rétt til embætta og atvinnu og karlar. Eftir að fyrstu áfangasigrar í baráttunni náðust, breyttist markmiðið í að tryggja kvenréttindi og jafna stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins. Félagið vinnur að réttindum allra kvenna sem búa á Íslandi. 

Í gegnum tíðina hafa baráttumál snúist um rétt kvenna til þungunarrofs, lengingu fæðingarorlofs, dagvistun fyrir börn, launajafnrétti og upprætingu kynbundins ofbeldis. Fyrirmynd að stofnun félagsins voru norræn kvenréttindasamtök og strax frá upphafi hefur verið lögð rík áhersla á alþjóðlegt samstarf. 

Kvenréttindafélag Íslands hefur einnig unnið að stofnun fjölmarga verkakvennafélaga. Samstarf þvert á félagslegar og pólitískar línur markaði sérstöðu íslenskrar kvennahreyfingar og gerir enn.

Í tilefni af Kvennaári 2025 þegar 50 ár eru liðin frá fyrsta Kvennafrídeginum þegar konur lögðu niður launuð og ólaunuð störf til að krefjast jafnréttis hefur Kvenréttindafélag Íslands sett upp sýninguna Kvennabaráttan í 110 ár. Sýningin byggir á fyrri farandsýningu félagsins frá árinu 2015 sem var sett upp á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna sem bar yfirskriftina „Kvenréttindabaráttan í 100 ár“ og var sett upp til að minnast kvennabaráttu síðustu aldar, með áherslu á kosningarétt kvenna sem var lögfestur 19. júní 1915. Sýningin var fyrst sett upp á samnorrænni jafnréttisráðstefnu í Svíþjóð sumarið 2014 og lauk í Reykjavík í desember 2015 eftir hringferð um allt landið. Nú hefur sýningin verið uppfærð og endurbætt.

Sýningin nú samanstendur af níu stórum veggspjöldum sem eru í tíma- og þemaröð þar sem sagt er frá kvenfélögum, baráttunni fyrir kosningarétti, verkalýðsbaráttunni, kvennafrídeginum og rauðsokkunum, Kvennalistanum og kvennaframboðum 9. áratugarins, fyrstu kvenkyns forsetum og forsætisráðherrum Íslands, listum kvenna og baráttunni gegn ofbeldi ásamt helstu vörðum í tímaröð.

  • Númer stöðvar: #2
  • Opnunartími stöðvar:
    13:30-14:30

  • Staðsetning:
    Sóleyjargata 17

  • Ártal:
    1907
  • Lýsing á atriði:
     
    Sýning á sögu félagsins.
  • Flytjandi/umsjón:
    Kvenréttindafélag Íslands