Kvennaskólinn í Reykjavík var stofnaður 1874 til að gera konum kleift að mennta sig
Kvennaskólinn á sér langa og merka sögu með rætur í baráttu fyrir bættri menntun kvenna. Hann er einn allra elsti skóli landsins, stofnaður árið 1874 af Þóru Melsteð og manni hennar Páli í þeim tilgangi að bjóða stúlkum upp á bóklegt og verklegt nám. Fyrstu öldina sem Kvennaskólinn í Reykjavík starfaði var hann eingöngu fyrir stúlkur en í dag er skólinn, eins og aðrir framhaldsskólar, fyrir alla nemendur óháð kyni. Ingibjörg H. Bjarnason, einn af fyrrum skólastjórum skólans, var fyrst kvenna til að taka sæti á Alþingi Íslendinga.
