Stjórnmálahreyfing skipuð konum fyrir konur
Eftir kjör Vigdísar Finnbogadóttur árið 1980 töldu konur tíma kominn til nýrra aðgerða. Komast þyrfti inn í kerfin, breyta þeim innan frá og koma konum að hljóðnemunum. Þannig kviknaði hugmyndin um kvennaframboð á tveimur stöðum á landinu árið 1982 – hvort um sig án þess að vita af hinu – í Reykjavík og á Akureyri. Bæði framboðin fengu tvær konur kjörnar í borgar- og bæjarstjórn. Fyrir kosningarnar voru konur 6% sveitarstjórnarmanna á landsvísu, þrátt fyrir að hafa haft kosningarétt og kjörgengi í hátt í 70 ár, en urðu 12,5% eftir kosningarnar.
Árið 1983 var Kvennalistinn stofnaður. Hann bauð fram til Alþingis og komust þrjár konur af listanum á þing. Konur voru áður 5% þingmanna en talan fór upp í 15% eftir kosningarnar. Markmið Kvennalistans var að tryggja að stjórnmálin fjölluðu um daglegt líf kvenna, breyta orðræðunni og styrkja sjálfsmynd kvenna ásamt því að fjölga þeim á vettvangi stjórnmálanna. Kvennalistakonur settu m.a. á dagskrá dagvistar- og skólamál, lögðu fram frumvarp um sérstakt fæðingarorlof fyrir karla, svokallaðan feðrakvóta, og lengingu fæðingarorlofs kvenna sem loks varð að veruleika árið 2000. Kvennalistinn lagði mikla áherslu á aðgerðir gegn kynferðislegu ofbeldi og öðru ofbeldi gegn konum og börnum, t.d. með opnun neyðarmóttöku vegna nauðgana. Þá var Kvennalistinn fyrsta pólitíska aflið sem studdi mannréttindabaráttu samkynhneigðra. Kvennalistakonur settu fram nýjar og róttækar hugmyndir í umhverfismálum og boðuðu hagstjórn sem var kennd við hina hagsýnu húsmóður.
Ádeilu sína á samfélagsleg viðhorf settu þær gjarnan fram með kaldhæðni og húmor, framkvæmdu alls kyns gjörninga og lögðu mikið upp úr því að baráttan mætti ekki bara vera erfið – það yrði að vera gaman og konur þyrftu að standa þétt saman. Eitt dæmi þess er þegar fulltrúar Kvennaframboðsins í Reykjavík, sem var undanfari Kvennalistans, mættu sem fegurðardrottningar í marengskjólum og sundbolum á fund borgarstjórnar til að mótmæla karlrembulegum ummælum borgarstjóra um útlit þeirra. Annað dæmi var þegar þær mættu í matvöruverslun og neituðu að borga meira en 60% af vöruverðinu með skírskotun til launamunar kynjanna.
Kvennaframboðin og Kvennalistinn ruddust inn á pólitískt svið sem á þeim tíma var nánast eingöngu skipað körlum og breyttu stjórnmálunum og um hvað þau fjalla. Það urðu vatnaskil í íslenskum stjórnmálum, í kjölfarið fjölgaði konum verulega á þeim vettvangi og eru kynjahlutföll nú nálægt því að vera jöfn á Alþingi og í sveitastjórnum.
