Samstaða og vitundarvakning um stöðu fatlaðra kvenna

Guðríður Ólafs Ólafíudóttir var einn brautryðjandi aukinnar þekkingar á stöðu fatlaðra kvenna, samstöðu þeirra og hreyfingar. Hún leitaði eftir samstarfi við Kvenfélagasamband Íslands og fór ásamt fulltrúum þess í fyrirlestrarferð um landið til að tala um stöðu fatlaðra kvenna. 

Í kjölfarið fór hópur fatlaðra og langveikra kvenna að hittast reglulega innan Öryrkjabandalags Íslands. Konurnar höfðu reynslu af því að fötlun þeirra eða veikindi væru ekki tekin alvarlega. Einnig höfðu þær upplifað litla atvinnumöguleika, þrátt fyrir menntun og hæfni á ýmsum sviðum. Niðurstöður erlendra rannsókna sýndu að fatlaðar og langveikar konur mættu meiri og annars konar fordómum en bæði ófatlaðar konur og fatlaðir karlar. Einnig höfðu greiningarviðmið og meðferðir við fjölmörgum sjúkdómum lengst af tekið mið af körlum en sjúkdómseinkenni kvenna og karla eru ekki ávallt þau sömu. Sömuleiðis höfðu lyfjaþróun og -rannsóknir verið unnar út frá körlum.

Í ljósi alls þessa var Kvennahreyfing ÖBÍ stofnuð þann 8. mars 2005, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Starf kvennahreyfingarinnar grundvallast á samkennd og þeirri sameiginlegu reynslu sem fatlaðar og langveikar konur deila.

 

  • Númer stöðvar: #5
  • Opnunartími stöðvar:
    13:30-14:30

  • Staðsetning:
    Sóleyjargata 11

  • Ártal:
    2005
  • Lýsing á atriði:
     
    Upplýsingaskilti
  • Flytjandi/umsjón:
    Kvennahreyfing ÖBÍ