Kvenfélagasamband Íslands

Formæður okkar bökuðu betra samfélag og lögðu grunn að velferðarkerfinu og kvennabaráttunni

Kvenfélagasamband Íslands (KÍ) var stofnað 1. febrúar 1930 og starfar sem regnhlífarsamtök kven- og líknarfélaga um land allt. Stofndagurinn, 1. febrúar, á 80 ára afmælinu, var árið 2010 útnefndur „Dagur kvenfélagskonunnar“. Innan KÍ starfa 17 héraðssambönd með um 135 kvenfélög. 

Markmiðið með stofnun Kvenfélagasambandsins var að kvenfélög landsins ættu sér samstarfsvettvang og málsvara.

Grunnur þess að Kvenfélagasambandið var stofnað var rík löngun kvenna til að hafa áhrif í þjóðfélaginu, saman yrðu þær sterkari til að koma þeim málum á framfæri sem þær brunnu fyrir. Menntun, heilsuvernd, hreinlæti, vinnuhagræðing á heimilum, sparnaður, fræðsla barna, ræktun jarðar, símenntun, samhjálp og margt fleira sem kvenfélagskonur vildu koma til leiðar. Þessi vegferð hófst með stofnun Kvenfélags Rípuhrepps árið 1869, sem er enn starfandi. Hið íslenska kvenfélag var stofnað 1894 en markmið þess var m.a. að auka réttindi kvenna. Kosningaréttur kvenna og menntun þeirra er baráttu skipulagðrar kvennahreyfingar að þakka, Kvenréttindafélaginu og kvenfélögunum. Félögin hafa jafnframt lagt áherslu á fjárhagslegt sjálfstæði kvenna en lögðu einnig grunn að því velferðarkerfi sem við búum við í dag, s.s. með stofnun sjúkrasjóðs og styrktarsjóða fyrir fátækar einstæðar mæður en einnig söfnun fyrir Landspítala ásamt öðrum félögum kvenna. 

Í gegnum áratugina hefur Kvenfélagasamband Íslands og kvenfélagskonur lagt mörgum málaflokkum lið. Þar mætti nefna heilbrigðismál, uppeldismál, mannúðarmál, jafnréttismál, atvinnu- og launamál, ræktunar- og umhverfismál. 

Kvenfélögin gefa árlega tugi ef ekki hundruð milljóna í góðgerðarmál, menntamál og til heilbrigðisstofnana víða um land. Oft er þessum fjármunum safnað með sölu á bakstri og handverki ýmiss konar. Það má því með sanni segja að saman hafi kvenfélögin bakað betra samfélag.

Kvenfélagasamband Íslands var eitt af þeim mörgu félögum kvenna sem tóku þátt í skipulagi Kvennafrídagsins árið 1975 og hefur verið einn af aðstandendum Kvennafrídagsins æ síðan. Viðtækt tengslanet kvenfélaga um land allt hefur nýtist vel þegar leitað er eftir samstöðu kvenna.

Kvenfélagasambandið rekur í dag þjónustuskrifstofu í Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum, húsinu sem konur söfnuðu fyrir og byggðu, og reka það ásamt Kvenréttindafélagi Íslands og BKR. Þar eru veittar upplýsingar, ráðgjöf og fræðsla til kvenfélaganna. Kvenfélög innan vébanda KÍ taka þátt í alþjóðlegu samstarfi kvenfélagskvenna og eru í samstarfi við ýmiss önnur félagasamtök til að ná fram markmiðum sínum.

Húsfreyjan er tímarit sem er gefið út af Kvenfélagasambandi Íslands, fyrsta tölublaðið kom út árið 1949 og hefur komið út 4x á ári síðan. Leiðbeiningarstöð heimilanna, var stofnuð af KÍ árið 1967 

Nýjasta verkefni Kvenfélagasambandsins og kvenfélaganna er „Vika einmanaleikans“ sem haldin var í byrjun október 2025.

Gildi Kvenfélagasambands Íslands og margra kvenfélaga eru Kærleikur – Samvinna – Virðing

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir er verndari KÍ

www.kvenfelag.is – www.husfreyjan.is – www.leidbeiningastod.is – www.vikaeinmanaleikans.is

 

  • Númer stöðvar: #6
  • Opnunartími stöðvar:
    13:30-14:30

  • Staðsetning:
    Sóleyjargata 3

  • Ártal:
    1930
  • Lýsing á atriði:
     
    Pilsaþytur kvenfélagskvenna sem hafa bakað betra samfélag frá 1930.
  • Flytjandi/umsjón:
    Kvenfélagasamband Íslands