Árið 1964 var Sigríður Sigurðardóttir handboltakona fyrst kvenna kosin íþróttamaður ársins. Þetta var einungis níu árum eftir að íþróttamaður ársins var fyrst valinn og hún var sjötti einstaklingurinn sem hlaut þennan titil, sem þótti nokkuð gott á þeim tíma.
Sigríður vann svo sannarlega fyrir heiðrinum með því að leiða íslenska landsliðið til sigurs á Norðurlandamótinu í handbolta, þar sem hún var bæði best og markahæst. Þetta var fyrsti Norðurlandameistaratitill Íslands í handbolta. Sigríður var jafnframt fyrsti einstaklingurinn úr hópíþrótt til að vera valin íþróttamaður ársins.
Eftir þetta liðu 24 ár þangað til næsta kona var loksins valin íþróttamaður ársins. Þá var Ragnhildur Runólfsdóttir sundkona kjörin. Ragnhildur setti, meðal annars, 200 Íslandsmet á ferlinum.
Á þeim 67 árum sem íþróttamaður ársins hefur verið kjörinn hafa 47 einstaklingar verið kjörnir og þar af einungis átta konur. Ein kona hefur verið kosin tvisvar, en það er Sara Björk Gunnarsdóttir knattspyrnukona. Árið 2024 skipuðu konur fyrstu þrjú sætin í kjörinu í fyrsta skipti.
Eftirtaldar konur hafa verið kosnar íþróttamaður ársins.
1964 Sigríður Sigurðardóttir
1991 Ragnheiður Runólfsdóttir
2000 Vala Flosadóttir
2007 Margrét Lára Viðarsdóttir
2015 Eygló Ósk Gústafsdóttir
2017 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
2018 & 2020 Sara Björk Gunnarsdóttir
2024 Glódís Perla Viggósdóttir
Skoðum nokkra áhugaverða punkta úr sögu íslenskra íþróttakvenna:
Árið 1964 urðu konurnar í íslenska landsliðinu í handbolta Norðurlandameistarar. Þetta var fyrsti Norðurlandameistaratitill Íslands. 4000 manns mættu og hvöttu íslenska liðið á Laugardalsvelli. Það liðu hins vegar allt of mörg ár þangað til liðið komst á lokamót Evrópukeppninnar fyrst eða 47 ár.
Árið 1976 voru fyrstu jafnréttislögin samþykkt á Íslandi en þau stuðluðu að meiri þátttöku kvenna í íþróttum.
Árið 1983 var Fríðu Bjarnadóttur meinað að hlaupa í fyrsta maraþoninu á Íslandi. Fríða var þá þegar búin að hlaupa tvö maraþon í Boston. Hún fékk að hlaupa í maraþoninu ári seinna og varð þar með fyrsta konan til að hlaupa í maraþoni á Íslandi. Áður hafði Ingunn Ósk Benediktsdóttir hlaupið í New York-maraþoninu árið 1979, fyrst íslenskra kvenna. Árið 1980 hljóp Anna Halla Kristjánsdóttir maraþon í Washington og setti Íslandsmet sem stóð í 15 ár. Violet Piercy var fyrsta konan í heiminum til að hlaupa maraþon í keppni árið 1926.
Árið 1984 var íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu lagt niður, þrátt fyrir yfir 2000 undirskriftir sem landsliðskonurnar söfnuðu sér til stuðnings. Landsliðið var ekki endurvakið aftur fyrr en 1993. Tveimur árum síðar voru þær hársbreidd frá því að komast í lokakeppni heimsmeistaramótsins. Árið 1995 var Ásta B. Gunnlaugsdóttir valin knattspyrnumaður ársins fyrst kvenna. Íslenska landsliðið komst svo í lokakeppni Evrópumótsins árið 2009 fyrst íslenskra liða í fótbolta.
Árið 2000 komst Vala Flosadóttir fyrst íslenskra kvenna á verðlaunapall á Ólympíuleikunum, þegar hún hafnaði í þriðja sæti í stangarstökki. Á sömu Ólympíuleikum hafnaði Guðrún Arnardóttir í 7. sæti í 400 metra grindahlaupi. Guðrún var meðal bestu 400 metra grindahlaupara í heimi 1996-2000 og keppti meðal annars á tvennum Ólympíuleikum.
Árið 2004 hlaut Kristín Rós Hákonardóttir alþjóðlega viðurkenningu sjónvarpsstöðvarinnar Eurosport sem var veitt í samvinnu við Alþjóðlegu Ólympíunefndina. Kristín Rós var ekki einungis fyrsti íslenski íþróttamaðurinn til að hljóta viðurkenninguna heldur einnig fyrsti íþróttamaðurinn úr röðum fatlaðra á heimsvísu til að hljóta viðurkenninguna. Á 22 ára ferli setti Kristín 60 heimsmet og 9 Ólympíumet í sundi og verður árangur hennar seint toppaður. Kristín var valin íþróttamaður fatlaðra 12 ár í röð.
Árið 2012 varð Annie Mist Þórisdóttir fyrsta konan í heimi til að verða heimsmeistari í Crossfit tvö ár í röð. Annie er einnig fyrsta konan til að komast á pall á heimsmeistaramótinu innan við ári eftir að hafa eignast barn.
Árið 2018 birtu 462 íþróttakonur sameiginlega yfirlýsingu um að jafna leikinn og lýstu reynslu sinni af áreitni, mismunun, ofbeldi og nauðgunum.
Árið 2018 jafnaði Knattspyrnusamband Íslands frammistöðubónus kvenna- og karlalandsliðsins en því höfðu kvennalandslið um allan heim barist fyrir lengi. Frægust og lengst var barátta bandarískra landsliðsins, sem hefur verið best í heimi seinustu áratugi. Þær náðu þessum árangri loksins árið 2022.
Árið 2023 vann Sara Björk Gunnarsdóttir knattspyrnukona mál sitt gegn franska knattspyrnustórveldinu Lyon. Lyon var dæmt til að greiða Söru Björk laun sem hún átti inni á meðan hún var í fæðingarorlofi. Málið er fordæmisgefandi fyrir allar framtíðarknattspyrnukonur sem eignast barn á meðan þær spila sem atvinnukonur í fótbolta. Sara Björk varð Evrópumeistari félagsliða, fyrst Íslendinga, með Lyon árið 2020 þar sem hún skoraði eitt af þremur mörkum liðsins í leiknum.
Árið 2023 stunduðu 38.114 stúlkur undir 18 ára aldri einhvers konar íþróttagreinar á Íslandi og 25.374 konur yfir 18 ára aldri. Því stunda um 40% allra kvenna skipulagðar íþróttir á Íslandi í dag. Áhrif íþróttahreyfingarinnar á samfélagið okkar er mikið og það er virkilega mikilvægt að við höldum áfram að vinna að auknu jafnrétti innan hreyfingarinnar, hvort sem það er í launum, aðbúnaði eða viðhorfum.
Heimildir: KSÍ, HSÍ, ÍSÍ, Vísir, RÚV, Wikipedia
Þessi texti er unninn af Hagsmunasamtökum knattspyrnukvenna og er ekki tæmandi. Það er ljóst að mikilvæga vendipunkta í sögu íslenskra íþróttakvenna vantar á þennan lista og það væri gaman ef áhugasamir vildu senda okkur nánari upplýsingar á knattspyrnukonur@gmail.com
