Konur kjósa og taka sér pláss í pólitík

Samstaða kvenna skilar fjórum fyrstu konunum í bæjarstjórn Reykjavíkur 

Kvenréttindafélag Íslands og önnur kvenfélög í Reykjavík stóðu saman að kvennalista til framboðs við bæjarstjórnarkosningarnar 1908. Allar fjórar konurnar á listanum náðu kjöri í bæjarstjórn. Þetta voru Bríet Bjarnhéðinsdóttir, Guðrún Björnsdóttir, Katrín Magnússon og Þórunn Jónassen.

Áralöng og vel skipulögð barátta kvenna skilaði aftur sigri árið 1915 þegar konur 40 ára og eldri fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. 

Ingibjörg H. Bjarnason varð fyrst kvenna kosin á Alþingi árið 1922, einnig af sérstökum kvennalista. Hún sat á Alþingi 1922–1930 fyrir Kvennalistann (eldri), Íhaldsflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn. Ingibjörg starfaði sem kennari og skólastjóri Kvennaskólans í Reykjavík í mörg ár og var formaður Landspítalasjóðs sem safnaði fé fyrir byggingu Landspítalans.

 „ … mun ég álíta mig komna þangað [á Alþingi] til þess að gæta hagsmuna þjóðar minnar, svo sem ég best veit – til að fylgja því sem flestum má að gagni koma á sameiginlegu þjóðarheimili karla og kvenna. En auðvitað býst ég við að þau mál gætu komið fyrir, að ég sérstaklega yrði að gæta hagsmuna kvenna.“ Ingibjörg H. Bjarnason

Tiltekt – Pilsaþytur í pólitíkinni

Lag: Takedown úr K Pop Demon Hunters, eftir Lindgren.
Texti: Inga Auðbjörg K. Straumland

Tiltekt, tiltekt
Taka, taka til
(Beibin í borgarstjórn!)
Tiltekt, tiltekt
Taka, taka til
(Tím’á tiltekt!)

Bad bitch, ég er Breiðafjarðarmey.
Fjórtán ég fór til Big REY.
Langað’í nám:
Ljósmóðurnám,
Pabbi var þvert nei.
Ég átti karl en hann dó,
Ég fór og flutti til bró,
Ég þurfti eigið fé og fann það í mjólk!
Fór í kvennannskól’í Köben
og því kynntist ég þar,
Konur mega læra meir’en
heimilisgreinarnar.
Já, við höfðum fengið nóg,
á karlaveldinu sem bjó
í borgarstjórn…

Það er kominn tími á smá tiltekt!
Stelpur komum, stendur til að hreinsa út.
Karla kveð’í kút.
Stjórnmálatiltekt!
Já, það er kominn tími til að taka til,
Þori, get og vil!
Ætla’ð byrja strax að taka til
(woah-oh, ta-taka til)
Þett’er tiltekt
(woah-oh, ta-taka til)
Ætla’ð taka til
(woah-oh, ta-taka til)
Þett’er tiltekt
(woah-oh, ta-taka til)
Taka til

Koma kosningar, rústum þeim
og sýnum þeim hvað
Þessar kerli he ngar, þær koma loks
í karlanna stað!
Strákapartý
átt’ekkert í.
vort kosningaplan.Loks við fáum að kjósa,
Svo úti má frjósa,
karlaklíkan!
Já, við höfðum fengið nóg,
á karlaveldinu sem bjó
í borgarstjórn…

Það er kominn tími á smá tiltekt!
Stelpur komum, stendur til að hreinsa út.
Karla kveð’í kút.
Stjórnmálatiltekt!
Já, það er kominn tími til að taka til,
Þori, get og vil!
Ætla’ð byrja strax að taka til
(woah-oh, ta-taka til)
Þett’er tiltekt
(woah-oh, ta-taka til)
Ætla’ð taka til
(woah-oh, ta-taka til)
Þett’er tiltekt
(woah-oh, ta-taka til)

Er í senn móðir, kona, meyja.
Já, ég þori, ég get og vil.
Og seinna meir þá börnin munu segja
Sjáðu mömmu, hún hreinsaði til.
Hjarta sem knýr, í brjóst’okkar býr
Nú komum við saman og krafan er skýr.
Því mótlæti og mótvindur,
stöðvað okkur aldrei fæ-æ-æ-ær.

You can try but you can’t hide
Koma kosningar, rústum þeim
og sýnum þeim hvað
Þessar kerlingar, þær koma loks
í karlanna stað!
Strákapartý
átt’ekkert í.
vort kosningaplan.
Loks við fáum að kjósa,
Svo úti má frjósa,
karlaklíkan!
Ætla’ð byrja strax að taka til
(woah-oh, ta-taka til)
Þett’er tiltekt
(woah-oh, ta-taka til)
Ætla’ð taka til
(woah-oh, ta-taka til)
Þett’er tiltekt
(woah-oh, ta-taka til)
Taka til

 

  • Númer stöðvar: #4
  • Opnunartími stöðvar:
    13:30-14:30

  • Staðsetning:
    Gatnamót Sóleyjargötu og Bragagötu

  • Ártal:
    1908
  • Lýsing á atriði:
     
    Söngkonur túlka Þórunni, Guðrúnu og Katrínu, sem kjörnar voru í bæjarstjórn Reykjavíkur 1908, ásamt Bríeti Bjarnhéðinsdóttur
  • Flytjandi/umsjón:
    Katrín Ýr Erlingsdóttir, Sigrún Ósk Karlsdóttir og Hildur Kaldalóns Björnsdóttir