Steina er sannur frumkvöðull í stafrænni miðlun og hefur haft djúpstæð áhrif á margar kynslóðir listafólks um heim allan. 

Í rúmlega hálfa öld hefur Steina búið til vídeóverk, gjörninga og innsetningar. Með skapandi nálgun við möguleika rafeindatækninnar hefur hún rannsakað það sem hún kallar sjálf „vélsýn“. Steina fæddist árið 1940, ólst upp í Reykjavík og lagði stund á fiðluleik. Árið 1969 tók hún sér Sony Portapak-myndbandsupptökuvél í hönd, nýstárlegt ferðatæki, og tók að gera tilraunir með þennan nýja miðil. Á sýningunni Steina: Tímaflakk er farið yfir verk listakonunnar allt frá upphafi, með áherslu á hlutverk leiks og hljóðs í hinum framsæknu sköpunarverkum hennar. Steina er brautryðjandi sem reynir sífellt á þanþol mannlegrar skynjunar og huglægni. Hún hefur enda lýst því sem skyldu sinni að miðla því með auga tækninnar sem okkur er annars hulið.

  • Númer stöðvar: #12
  • Opnunartími stöðvar:
    13:45-14:45

  • Staðsetning:
    Fríkirkjuvegur 7

  • Ártal:
    1969
  • Lýsing á atriði:
     
    Örleiðsagnir um Steinu, frumkvöðul í stafrænni myndlist.
  • Flytjandi/umsjón:
    Listasafn Íslands