Konur á afsláttarkjörum

Kvennastéttir halda samfélaginu gangandi á afsláttarkjörum

Konur í stóru kvennastéttunum hafa barist fyrir launajafnrétti í meira en eina öld.

Megin ástæða launamunar kynjanna er hinn kynskipti vinnumarkaður og vanmat á störfum kvenna. Stórar kvennastéttir vinna einkum hjá hinu opinbera, í skólum, heilbrigðisstofnunum, hjúkrunarheimilum og þjónustu við fatlað fólk. Þá eru stórar kvennastéttir á almennum vinnumarkaði líkt og í fiskvinnslu, ræstingum og á veitingastöðum með lægstu launin á vinnumarkaði. 

Rannsóknir sýna að rangt hafi verið gefið við launasetningu í upphafi þegar störf kvenna færðust af heimilum yfir á vinnumarkaðinn og að frá upphafi hafi kynin að miklu leyti unnið ólík störf. Kvennastörfin eru þau störf þar sem ríkir hvað mest álag, mesta manneklan, starfsmannaveltan og veikindafjarveran. Störfin eru erfiðisvinna og halda samfélaginu gangandi á afsláttarkjörum. 

Upphaflega fengu konur ekki aðgang að stéttarfélögum og stofnuðu því sín eigin verkakvennafélög. Talið er að fyrsta verkfall kvenna hafi verið 1907 þegar hafnfirskar verkakonur sem unnu við fiskbreiðslu fóru í dagsverkfall sem skilaði þeim launahækkun. Fjöldi kvenna hefur ítrekað lagt niður störf síðan þá og unnið áfangasigra en ekki leiðréttingu í samræmi við raunverulegt verðmæti starfa sinna né til samræmis við sambærilegar stéttir.

  • Númer stöðvar: #14
  • Opnunartími stöðvar:
    13:45-14:45

  • Staðsetning:
    Fríkirkjuvegur

  • Ártal:
    1907
  • Lýsing á atriði:
     
    Fulltrúar kvennastétta vekja athygli á vanmati á vinnuframlagi kvenna.
  • Flytjandi/umsjón:
    Kennarasamband Íslands