Kvennahljómsveitin Grýlurnar 1981
Árið 1981 dreymdi Ragnhildi Gísladóttur um að stofna kvennahljómsveit. Hún auglýsti eftir hljóðfæraleikurum og stofnaði Grýlurnar með þeim Herdísi Hallvarðsdóttur á bassa, Lindu Hreiðarsdóttur á trommum og Ingu Rún Pálmadóttur á gítar. Ragnhildur lék á hljómborð og söng. Grýlurnar voru fyrsta íslenska kvennarokkhljómsveitin. Ragnhildur hefur útskýrt valið á nafni hljómsveitarinnar með því að „þér leyfist allt sem grýla“ og nafnið gæti þannig eflt femínismann. Textar hljómsveitarinnar voru femínískir og litaðir af kaldhæðni gagnvart karlmönnum.
