Saga Femínistafélags Íslands hófst árið 2003. Spenna lá í loftinu. Kosningar voru framundan og óánægja víða með stöðu jafnréttismála. Póstlisti sem átti að vera umræðuvettvangur fyrir femínista var stofnaður í febrúar 2003. Skráningar á listann fóru fram úr björtustu vonum og innan tveggja vikna voru um 200 femínistar skráðir á listann. Í kjölfarið varð krafan um stofnun félags hávær. Stofnfundur Femínistafélags Íslands var haldinn þann 14. mars árið 2003 í húsi Miðbæjarskólans. Framhaldsstofnfundur var tveim vikum seinna, eða þann 1. apríl. Þar með var félagið formlega stofnað og búið var að kjósa í ráð og stofna hópa.

Skipulag félagsins miðaðist við valddreifingu og jafna ábyrgð. Þess vegna var enginn formaður kosinn heldur á ábyrgð að dreifast jafnt á félaga. Leitast er við að hafa öflugt starf á netinu svo fólk geti tekið þátt hvaðan sem er.

Félagið hætti störfum árið 2020.

  • Númer stöðvar: #13
  • Opnunartími stöðvar:
    13:45-14:45

  • Staðsetning:

  • Ártal:
    2003
  • Lýsing á atriði:
     
  • Flytjandi/umsjón: