Konur hafa barist fyrir fæðingarorlofi og leikskólum í áratugi
Ísland var nokkuð á eftir Norðurlöndunum þegar kom að því að tryggja foreldrum fæðingarorlof. Fyrstu réttindi tengd fæðingarorlofi var að finna í kjarasamningum og reglum varðandi ríkisstarfsmenn. Núverandi fæðingarorlofskerfi, sem var komið á árið 2000, tryggði foreldrum 9 mánaða fæðingarorlof og var afrakstur langrar baráttu kvennahreyfingarinnar og verkalýðshreyfingarinnar. Í tengslum við gerð kjarasamninga árið 2019 var fæðingarorlofið lengt í 12 mánuði.
Eftir því sem næst verður komist var fyrst gerð krafa um sérstakt feðraorlof á svokallaðri Loftleiðaráðstefnu sem haldin var af samstarfsnefnd um Kvennaár árið 1975. Öll þau samtök sem börðust fyrir lengra fæðingarorlofi og auknum greiðslum lögðu frá þeim tíma áherslu á rétt feðra til fæðingarorlofs. Fæðingarorlof er í dag 6 mánuðir fyrir hvort foreldri en heimilt er að framselja 6 vikur til hins foreldrisins. Það hefur leitt til þess að í nær öllum tilvikum taka konur rúma 7 mánaða fæðingarorlof en karlar um 4 mánuði.
Bríet Bjarnhéðinsdóttir hefur líklega verið meðal þeirra fyrstu sem lögðu til að komið yrði á fót uppeldisstofnun þar sem smábörn væru í gæslu á daginn en það gerði hún árið 1894. Næstu áratugina á eftir voru oft lagðar fram hugmyndir og gerðar kröfur um uppeldisstofnanir fyrir ung börn en hundrað ár liðu áður en réttur til leikskólapláss varð almennur fyrir flest börn við tveggja ára aldur.
Bandalög kvenna, verkakvennafélög, barnavinafélagið Sumargjöf og einstaklingar opnuðu barnaheimili, leikvelli, dagvistarheimili og leikskóla á 20. öld en plássin voru fá og algengt var að litið væri á dagvistun sem félagslegt úrræði sem skyldi eingöngu vera í boði þegar illa stæði á, s.s. fyrir konur sem væru einstæðar eða í námi.
Dagvistun barna var eitt helsta áherslumál Rauðsokkahreyfingarinnar á áttunda áratugnum og svo Kvennaframboðs og Kvennalista á níunda áratugnum. Reykjavíkurlistinn bauð fyrst fram til borgarstjórnar í Reykjavík árið 1994 en hann lagði mikla áherslu á leikskólamál og samfelldan skóladag sem var stórmál fyrir foreldra. Reykjavíkurlistinn gjörbylti stöðunni í Reykjavík og lagði grunn að því leikskólakerfi sem við búum við í dag.
Fæðingarorlof er líkt og fyrr segir 12 mánuðir en innan við 10% barna fær leikskólapláss við 12 mánaða aldur og yfir helmingur þeirra er orðinn meira en 18 mánaða við upphaf leikskóladvalar. Konur brúa frekar umönnunarbilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla og eru líklegri til að vera í hlutastarfi sem bitnar á launum þeirra og starfsþróunarmöguleikum. Heildartekjur kvenna dragast saman um 50% eftir fæðingu fyrsta barns en tekjur karla standa í stað. Tíu árum eftir fæðingu barns eru tekjur kvenna enn um 35% lægri en þær voru fyrir fæðingu en rauntekjur feðra hækka.
