Bríet Bjarnhéðinsdóttir

Bríet Bjarnhéðinsdóttir brautryðjandi í fyrstu bylgju kvenréttindabaráttunnar

Bríet Bjarnhéðinsdóttir (1856-1940) var brautryðjandi á sviði kvenréttinda. Hún átti stóran þátt í að hrinda af stað fyrstu bylgju (?) kvenréttindabaráttunnar á Íslandi fyrir lágmarksréttindum kvenna eins og kosningarétti, rétti kvenna til að bjóða sig fram í kosningum og rétti til menntunar en lengi vel höfðu eingöngu karlar þann rétt. 

Bríet var líklega fyrsta konan til að ræða  launamisrétti, misréttið sem felst í því að konur hefðu ekki sömu möguleika og karlar til að vinna, og að byggja þyrfti upp uppeldisstofnanir þar sem smábörn væru í gæslu á daginn.  Hún var einnig fyrst kvenna til að fá birta grein um kvenréttindi, hélt fyrst kvenna opinberan fyrirlestur og fór að gefa út Kvennablaðið (1895-1919) sem var útbreitt blað á tímabili eitt mest selda blað landsins.

Bríet átti frumkvæði að stofnun Kvenréttindafélags Íslands, var formaður félagsins í tvo áratugi og átti mestan þátt í að íslenskar konur urðu hluti af alþjóðlegri kvenréttindabaráttu. Eitt af því sem hún lagði hvað mesta áherslu á var að konur myndu skipuleggja sig s.s. með stofnun félaga, eins  og t.d. stéttarfélögum verkakvenna og samvinnu allra þessara hópa.

  • Númer stöðvar: #1

  • Opnunartími stöðvar: 13:30-14:30

  • Staðsetning: Sóleyjargata 21

  • Ártal: 1887

  • Lýsing á atriði: 

    Bríet, leikin af leikkonu, tekur á móti fólki við upphaf Sögugöngunnar, segir þeim frá sínum hugðarefnum og útskýrir gönguna.

  • Flytjandi/umsjón:

    Sandra Barilli