
Bríet Bjarnhéðinsdóttir brautryðjandi í fyrstu bylgju kvenréttindabaráttunnar
Bríet Bjarnhéðinsdóttir (1856-1940) var brautryðjandi á sviði kvenréttinda. Hún átti stóran þátt í að hrinda af stað fyrstu bylgju kvenréttindabaráttunnar á Íslandi fyrir lágmarksréttindum kvenna eins og kosningarétti, rétti kvenna til að bjóða sig fram í kosningum og rétti til menntunar en lengi vel höfðu eingöngu karlar þann rétt.
Bríet var líklega fyrsta konan til að ræða launamisrétti, misréttið sem felst í því að konur hefðu ekki sömu möguleika og karlar til að vinna, og að byggja þyrfti upp uppeldisstofnanir þar sem smábörn væru í gæslu á daginn. Hún var einnig fyrst kvenna til að fá birta grein um kvenréttindi, hélt fyrst kvenna opinberan fyrirlestur og fór að gefa út Kvennablaðið (1895-1919) sem var útbreitt blað og á tímabili eitt mest selda blað landsins.
Bríet átti frumkvæði að stofnun Kvenréttindafélags Íslands, var formaður félagsins í tvo áratugi og átti mestan þátt í að íslenskar konur urðu hluti af alþjóðlegri kvenréttindabaráttu. Eitt af því sem hún lagði hvað mesta áherslu á var að konur myndu skipuleggja sig s.s. með stofnun félaga, eins og t.d. stéttarfélögum verkakvenna og samvinnu allra þessara hópa.
„Við sem vorum ung kringum 1874 þegar sjálfstæðisbaráttan stóð sem hæst vorum full af eldmóði og hugsjónum. Okkur dreymdi dagdrauma og miklar hræringar gerðu vart við sig. Ég mótaðist þessi ár og hugsaði margt. Við gerðum uppreisn gegn hvers konar órétti hvar sem við fundum hann.“ – Bríet Bjarnhéðinsdóttir
