Barátta gegn kynbundnu ofbeldi hófst um 1980
Umræða um ofbeldi gegn konum varð ekki opinber á Íslandi fyrr en um 1979 í kjölfar vitundarvakningar á hinum Norðurlöndunum. Fyrir þann tíma voru það einkum rithöfundar sem ljáðu máls á kynbundnu ofbeldi, þótt fjöldi heimilda sýni að konur hafi sætt ofbeldi frá örófi alda.
Talið er að fyrsta íslenska fræðsluefnið um kynbundið ofbeldi, Íhugunarbréf um ofbeldi, hafi verið gefið út af Jafnréttisnefnd Neskaupstaðar árið 1980. Þar var fólk hvatt til að rjúfa þögnina um ofbeldi karla gegn konum, ástæður ofbeldis voru greindar og settar í samhengi við stöðu kynjanna. Samtök um kvennaathvarf voru stofnuð að danskri fyrirmynd árið 1982 og síðar sama ár komu þau á fót fyrsta kvennaathvarfinu í Reykjavík, fyrir konur og börn sem bjuggu við ofbeldi á heimilum sínum. Ýmsir sjálfboðaliðahópar unnu gegn kynferðisofbeldi á þessum árum, s.s. Barnahópur Kvennaathvarfsins, Ráðgjafarhópur um nauðgunarmál, Kvennaráðgjöfin og Vinnuhópur gegn sifjaspellum. Loks var ákveðið að koma á fót ráðgjafar- og upplýsingamiðstöð fyrir konur og börn sem höfðu verið beitt kynferðisofbeldi og það leiddi til stofnunar Stígamóta árið 1990.
Fjöldi samtaka bættist við í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi upp úr síðustu aldamótum og ólíkar samfélagsmiðlabyltingar hafa átt sér stað, eins og þegar konur deildu sögum af misnotkun, nauðgunum og öðru kynferðisofbeldi sem þær höfðu orðið fyrir í lokuðum facebookhópi árið 2015 undir myllumerkinu #höfumhátt. #freethenipple-bylting varð á Íslandi árið 2015, Druslugangan var fyrst gengin 2011, #metoo-byltingin hófst 2017 og í kjölfarið voru baráttusamtökin Öfgar stofnuð og fjölmörg önnur samtök brotaþola.
2015: #freethenipple, #konurtala, #beautytips
2017: #höfumhátt #metoo
