„SKO MÖMMU, HÚN HREINSAÐI TIL“
Söguganga um merka áfanga í íslenskri kvennabaráttu
Konur og kvár í Kvennaverkfall þann 24. október á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni safnast saman á horni Sóleyjargötu og Njarðargötu þar sem söguganga hefst kl. 13:30 og stendur til rétt fyrir kl. 15. Gangan krefst ekki leiðsagnar heldur verða atriði, gjörningar, list, leikur, spuni, uppistand, baráttusamtök og söngur á mismunandi stöðum á gönguleiðinni. Göngufólk stjórnar því eigin hraða á göngunni en vissara er að gefa sér rýmri tíma en ekki áður en haldið er á útifund á Arnarhóli sem hefst kl. 15.
Söguganga hefst hér
Fara á fyrstu stöð
Bríet Bjarnhéðinsdóttir
Kvenréttindafélag Íslands
Samtaka
Konur kjósa og taka sér pláss
Kvennahreyfing ÖBÍ
Kvenfélagasamband Íslands
Samtökin '78
Vigdís Finnbogadóttir
Kvennalistinn
Konur og íþróttamaður ársins
Kvennaskólinn
Konur í listum
Femínistafélagið
Konur á afsláttarkjörum
W.O.M.E.N in Iceland
Baráttan gegn kynbundnu ofbeldi
Grýlurnar
Þriðja vaktin
Fæðingarorlof og leikskólar
Jóhanna Sigurðardóttir
Rauðsokkahreyfingin
Útifundur á Arnarhól
Smelltu á punktana á myndinni til að fá nánari upplýsingar um stöðvarnar.

Sóleyjargata
Stöðvar opna: 13.30 // Stöðvar loka: 14.30
Í gönguleiðinni í Sóleyjargötu (frá horni Sóleyjargötu og Njarðargötu) verða stöðvar sem endurspegla baráttukonur og hreyfingar kvenna í gegnum tíðina. Fyrst mætum við Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, brautryðjanda í kvenréttindabaráttu sem verður túlkuð af leikkonunni Söndru Barilli. Því næst hittum við Þórunni, Guðrúnu og Katrínu sem kjörnar voru inn í bæjarstjórn Reykjavíkur 1908, ásamt Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, sem syngja rappskotinn baráttusöng um þátttöku sína í stjórnmálumverða túlkaðar með söng.
Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagasamband Íslands verða líka með sínar stöðvar en bæði samtökin voru stofnuð í byrjun 20. aldar. Þá verður kvennahreyfing ÖBÍ í baráttuhug. Á svölum skrifstofu forseta Íslands við Sóleyjargötu 1 hyllum við Vigdísi og fyrir neðan garð gefst öllum tækifæri til að skrifa þakkir til hennar.
Meðfram Sóleyjargötu verður útilistaverkið SAMTAKA sem er hannað af Helgu Sif Guðmundsdóttur listakonu en fjöldi fólks kom að gerð þess. Myndmálið er tekið úr ævagamalli textílhefð – kögri – sem birtist í klæðnði, húsgögnum og öðrum hönnunarmunum. Verkið er hengt á milli trjánna á Sóleyjargötunni. Kvenlegt kögrið tengir saman götumyndina og sýnir samtakamátt kvenna.
Fríkirkjuvegur
Stöðvar opna: 13.45 // Stöðvar loka: 14.45
Þegar komið er á Fríkirkjuveg taka kröftugar Kvennalistakonur á móti okkur í Hallargarðinum. Þar fara þær yfir slagorð sín, baráttu og endurtaka jafnvel myndrænan gjörning. Við fetum slóðina áfram inn í Hallargarðinn og sjáum gjörning Hagsmunasamtaka kvenna í knattspyrnu. Þaðan liggur leiðin áfram í garðinum að Kvennaskólanum í Reykjavík, sem er einn elsti skóli landsins og var stofnaður til að gera konum kleift að mennta sig, verður með viðburð fyrir framan skólann. Listasafn Íslands tekur einnig þátt í sögugöngunni og Femínistafélag Íslands mun rifja upp aðgerðir sínar gegn kynbundnu ofbeldi og konukrónuna.
Á Fríkirkjuvegi taka ómissandi kvennastéttir á móti okkur með látum og baráttuanda. Því næst hittum við fulltrúa W.O.M.E.N. – samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi sem munu myndgera þær byrðar sem konur er erlendum uppruna bera.


Lækjargata
Stöðvar opna: 14:00 // Stöðvar loka: 15:00
Þegar er komið í Lækjargötu tekur við baráttuheimur gegn ofbeldi. Þar munu fjölmörg samtök sem vinna gegn kynbundnu ofbeldi taka höndum saman, endurgera vitundarvakningar og gjörninga fortíðarinnar og bjóða göngufólki að taka þátt. Á grasinu fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík verður ein fyrsta kvennahljómsveit landsins, Grýlurnar, hyllt með ábreiðuflutningi hljómsveitarinnar Heklu og mæðraveldisins.
Í bakarabrekku munu spunaleikarar spinna spuna um þriðju vaktina. Á leikvellinum við hliðina á mun tveggja barna móðirin Birna Rún Eiríksdóttir uppistand um upplifun sína af fæðingarorlofi og leikskólum.
Þegar göngu er haldið áfram Lækjargötu má sjá endurgerða fyrstu Gleðigönguna þegar horft er upp Bankastræti. Það eru fulltrúar ungu kynslóðarinnar í Samtökunum ’78 sem eiga heiðurinn af þessari litríku stöð. Fyrir framan Stjórnarráðið má svo heyra í Jóhönnu Sigurðardóttir fyrsta kvenkyns forsætisráðherranum sem verður túlkuð af Arndísi Egilsdóttir.
Á síðustu stöð göngunnar á Lækjartorgi verður heimur Rauðsokkahreyfingarinnar og Kvennafrís 1975. Þar verða endurgerðir munir úr baráttusögu Rauðsokka eins og Venusarstyttan og örþreytta húsmóðirin. Beljan Perla Fáfnisdóttir verður að sjálfsögðu á vappi um torgið. Undir lok sögugöngunnar verða Rauðsokkur mættar á torgið rétt eins og 1975.
