Sóley: 

 Í dag eru 50 ár síðan konur lögðu fyrst niður störf sín og kröfðust þess að fá jöfn laun og karlar. Það er ótrúlegt hvað við höfum komist langt en við megum aldrei missa eldinn og kraftinn innra með okkur. Höldum áfram að berjast fyrir þeirri veröld sem við viljum.

Ég vil veröld þar sem er tekið jafn mikið mark á mér og hverjum öðrum karlmanni. Ég vil ekki að það sé horft öðruvísi á mig vegna þess að ég er kona af erlendum uppruna. Mér finnst algjört aðalatriði að virðing sé borin fyrir hverjum og einum. Þetta er sú veröld sem ég vil.

Lotta:

Ég vil veröld þar sem jafnréttisfræðsla á öllum skólastigum í öllum  skólum er sjálfsögð og ekki umdeild. Þetta er sú veröld sem ég vil.

Nína:

Ég vil veröld þar sem að orð kvenna og kvára eru ekki dregin í efa. Þar sem að kvenheilsa er metin til jafns á við aðra og að öll hafi jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Þetta er sú veröld sem ég vil

Ísey:

Ég vil veröld þar sem trans konur eru ekki aðskildar öðrum konum. Þar sem við erum samþykktar af samfélaginu og okkur líður ekki eins og við séum brotnar.

Þetta er sú veröld sem ég vil.

Áróra:

Ég vil veröld þar sem kynbundið ofbeldi er ekki raunveruleiki meirihluta kvenna og kvára í kringum mig. Ég vil að réttarkerfið okkar trúi þolendum í stað þess að bregðast þeim og að gerendur séu látnir axla ábyrgð. Þetta er sú veröld sem ég vil.

Embla:

Ég vil veröld þar sem konur og kvár þurfa ekki að vera undirgefnar og þjónustufúsar. Veröld þar sem strákum er kennt að axla jafn mikla ábyrgð, svo kærustur og konur þeirra þurfi ekki að ganga þeim í móðurstað. Þetta er sú veröld sem ég vil.

Júlí:

Ég vil veröld þar sem ég er ekki eina manneskjan í kynningar hringnum sem þarf sérstaklega að taka fram að fornöfnin mín séu hán. Ég vil veröld þar sem ég þarf ekki að taka alla ábyrgðina á því að kenna fólki hvernig eigi að bera virðingu fyrir mér.

Þetta er sú veröld sem ég vil.

Stína:

Ég vil veröld þar sem ég get fengið að segja mínar skoðanir án þess að vera álitin frekja eða dónaleg. Að ég sé álitin jafn hæf og strákarnir í bekknum mínum þegar að auglýst var eftir “sterkum strákum til þess að bera þunga borðið”. Þetta er sú veröld sem að ég vil.

Dýrleif:

Ég vil veröld þar sem ég get farið að skemmta mér án þess að vera kynferðislega áreitt. Að geta dansað án þess að það sé gripið í, snert eða káfað á mér. Að ég geti dansað og verið kærulaus eins og karlmennirnir geta gert. Þetta er sú veröld sem ég vil.

Sunna Elvira:

Ég vil veröld þar sem fatlaðar konur fá fullan aðgang að menntun, heilbrigðisþjónustu og atvinnu – án hindrana. Veröld þar sem fatlaðar konur fá að lifa lífi sínu án þess að þurfa stöðugt að sanna tilverurétt sinn.

Þetta er sú veröld sem ég vil

Áróra:

Ég vil veröld þar sem ég get eignast barn án þess að tekjur mínar lækki.

Júlí:

Ég vil veröld þar sem ég fæ að taka mínar ákvarðanir um minn líkama. 

Stína:

Ég vil veröld þar sem ég get klætt mig eins og ég vil án þess að vera dæmd. 

Lotta:

Ég vil veröld þar sem þungunarrof er sjálfsagt og aðgengilegt allstaðar.

Embla:

Ég vil veröld þar sem læknarannsóknir fyrir kvenheilsu eru gerðar á kvenlíkömum

Sóley:

Ég vil veröld þar sem trans konur geta farið á klósettið án þess að verða fyrir aðkasti.

Ísey:

Ég vil veröld þar sem konur geta rætt málefni í Kastljósi án þess að það sé gripið frammí fyrir þeim aðra hverja sekúndu.

Sunna:

Ég vil veröld þar sem fatlaðar konur fá réttlæti.Ekki þöggun, afsakanir og kerfisbundna útilokun.

Dýrleif:

Ég vil veröld þar sem ég get labbað ein heim á kvöldin án þess að vera hrædd

Nína:

Ég vil veröld þar sem ég fæ ekki óumbeðnar typpamyndir sendar á mig.

Júlí:

Ég vil veröld þar sem konur í íþróttum fá sama stuðning og fjármagn og karlar í íþróttum

Embla:

Ég vil veröld þar sem hinsegin konur eru ekki klámvæddar.

Lotta:

Ég vil veröld þar sem konur í Palestínu geta lifað öruggar í sínu landi án kúgunar og þjóðarmorðs

Áróra:

Ég vil veröld þar sem konur í Congó og Súdan þurfa ekki að lifa við kynferðislegt ofbeldi, kúgun og þjóðarmorð.

Sunna:

Ég vil veröld þar sem konur og kvár með ADHD og einhverfu fá greiningu og svör fyrr.

Nína:

Ég vil veröld þar sem að allar konur hafi rétt á menntun.

Sóley:

Ég vil veröld þar sem algeng störf kvenna eru metin sömu verðleikum og algeng störf karla

Stína:

Ég vil veröld þar sem konur og kvár geta ferðast um heiminn án þess að óttast um öryggi sitt.

Dýrleif:

Ég vil veröld þar sem konur og kvár lifa við jafnrétti.

Öll:

Þetta er sú veröld sem ég vil.

Nú skulum við ímynda okkur þessa nýju veröld saman.

Ef að við getum ímyndað okkur hana þá getum við byggt hana.

Við skulum öll haldast í hendur og loka augunum ef það hentar.

Öndum inn, öndum út.

Í Hvers konar veröld vilt þú lifa? 

Hvert er þitt hlutverk í þeirri veröld?

Hvers konar samfélag viljum við skapa?

-Smá þögn-

Þetta er sú veröld sem ég vil.

Nú skulum við segja öll saman “Þetta er sú veröld sem ég vil

3..2..1..

Öll: Þetta er sú veröld sem ég vil

Þátttakendur og höfundar atriðis:

Áróra // námskona og femínisti
Dýrleif Gígja // femínisti og Háskólanemi
Embla Rún Hall // stjórnmálafræðingur og skáld
Júlí Mjöll // leikari og listakvár
Ísey Mjöll Jensdóttir // leikkona og femínisti
Kristín, Námsmaður // baráttukona og aktivisti
Lotta Lóa // félagsfræðingur og femimisti
Nína // kennaranemi og femínisti
Sóley Lóa Smáradóttir // menntaskólanemi
Sunna Elvira // lögfræðingur og baráttukona fatlaðs fólks

Leikstjóri: Júlí Mjöll