Ræða Mörtu Ólafar Jónsdóttur á Arnarhóli, 24. október 2025

Konur og kvár – til hamingju með daginn – í dag eru 50 ár frá því að konur lögðu fyrst niður störf 1975. Dagurinn markaði tímamót í íslensku samfélagi og vatnaskil í íslenskri kvennabaráttu. Kvennasamstaðan og krafturinn leystist úr læðingi og í kjölfarið vannst hver sigurinn á fætur öðrum í átt að jafnrétti. 

Það er ljúfsárt að óska ykkur til hamingju með daginn, það er ljúfsárt að standa hér fyrir framan ykkur 50 árum síðar. Í dag þökkum við þeim hugrökku konum sem ruddu brautina og styrkjum systraböndin fyrir áframhaldandi baráttu fyrir fullu jafnrétti og betra samfélagi. 

Hér erum við saman komnar, enn á ný, og mætum þar til við þurfum ekki að mæta lengur. Hvernig stendur á því að við þurfum enn að mæta eftir 50 ára baráttu? 

Á Íslandi eru mörg af valdamestu embættum landsins skipuð konum. Forseti, forsætisráðherra, biskup og fleiri – hvað er það þá sem vantar uppá?

Konur vinna á afsláttakjörum því enn eru hefðbundin kvennastörf vanmetin. Konur bera enn hitann og þungann af umönnun barna og heimilis. 40% kvenna hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi á lífsleiðinni. Horfum yfir hópinn. Tvær af hverjum fimm konum  hafa orðið fyrir ofbeldi á lífsleiðinni.

Við sem hér stöndum í dag vitum að þessi tölfræði fjallar um raunverulegar manneskjur – hún fjallar um okkur! 

Ég gæti sagt ykkur frá starfi mínu í láglaunavinnu í leikskóla. Starfi sem ég brann fyrir í 20 ár. 

Ég gæti sagt ykkur frá álaginu að vera einstæð móðir tveggja barna – nánast öll þeirra uppvaxtarár. 

Ég gæti sagt ykkur frá baráttunni sem fylgir því að eiga fatlað barn og þeim áskorunum sem ég stóð frammi fyrir sem ung móðir, ég var 18 ára.

Ég veit að margar ykkar gætu sagt svipaðar sögur. 

Getur verið að ráðamenn íslensku þjóðarinnar, horfi en sjái ekki neitt, hlusti en heyri ekki neitt, tali en geri ekki neitt?

Mér líður oft eins og við séum alltaf að segja sömu söguna – og ekkert gerist. 

Samfélagið fær afslátt á vinnu kvenna en afleiðingarnar fyrir konurnar eru fjárhagslegt helsi. Ég þekki á eigin skinni að fátækt fylgir skömm. Að þurfa stöðugt að vera að flytja á milli leiguíbúða, að hafa ekki efni á nógu góðum mat fyrir bönin sín, að kvíða kaupum á stígvélum og pollagöllum. Þessi skömm hefur áhrif á líðan, veldur kvíða, vanmætti og áhyggjum sem hafa margfeldisáhrif inn í allt daglegt líf. Þessari skömm ætla ég að skila til samfélagsins sem hefur lagt þetta á mig og svo margar aðrar konur. 

Við mætum þar til við þurfum ekki að mæta lengur

Konur þorðu, vildu og gátu fyrir 50 árum.

Við þorum, við viljum og við getum!  – Áfram stelpur!!