Ræða Önnu Mörtu Marjankowska við Arnarhól, 24. október 2025

Ég hef þrjár mínútur til að deila með ykkur hugsunum mínum sem kona af erlendum uppruna búsett á Íslandi.
Það að ég sé hér í dag þýðir að ég hef áunnið mér rétt til þess. Ástæða þess er þátttaka mín í verkalýðsbaráttu og aðkoma að skipulagningu verkfalla 2019.
Við þurfum að tala um hið mikilvæga hugtak: „verkfall.“
//Við skulum byrja á smá æfingu: Lyftið upp hönd ef þið eigið í hættu á að missa starf ykkar með því að vera hér í dag?
Það er erfitt að trúa því, en það geta ekki öll verið með okkur hér í dag. Kvennafrí er íslensk hefð, en mörg geta ekki tekið þátt þar sem þau fá ekki greidd laun ef þau leggja niður störf. Í Kvennafríi 2018 horfði ég á glaðværan hóp safnast saman á Arnarhóli á meðan ég var að skipta á rúmum á hóteli rétt hjá. Ég upplifði ekki að konur eins og ég væru hluti af þessari baráttu. Sjö árum síðar, þá geta mörg okkar ekki tekið þátt.
Ég vil skora á ykkur á 50 ára afmæli eins stærsta verkfalls í nútímasögu Evrópu – Kvennaverkfallsins 1975.
Kvennaverkfallið 1975 er táknmynd kvennasamstöðu, framúrskarandi grasrótarstarfs, inngildingu, sterku myndmáli, frábærrar tónlistar og frásagna sem hafa gert þennan dag ógleymanlegan um allan heim. Saga Kvennaverkfallsins er alþjóðlegt tákn um samstöðu og styrk sem hefur leitt svo mörg okkar hingað til Íslands í leit að öryggi.
Hér líður okkur eins og við séum langt frá löndum sem er stýrt af frekum körlum, sem troða sér inn á skjáina okkar á hverjum degi.
Febrúar 2022 – Úkraína. Október 2023 – Gaza.
Eina móteitrið er sterkt samfélag og samstaða sem þjappar okkur saman og fær okkur til að standa hvert með öðru.
Ákall mitt til ykkar: Ef þið viljið styðja verkfallsbaráttu launafólks, þá er það gert með því að standa með fólki sem eyðir mánuðum saman í þrotlausa baráttu fyrir bættum kjörum og vinnuskilyrðum. Styðjið verkföll sem eru skipulögð í skólum barna ykkar og í einkafyrirtækjum. Tökum höndum saman og þrýstum hvert og eitt á þau sem völdin hafa til að tryggja grundvallar réttindi sem við getum ekki lifað án, eins og húsnæði á viðráðanlegu verði, heilbrigðisþjónustu og menntun.
Byrjum að skipuleggja okkur í dag, svo við getum á næsta ári haldið upp á afmæli Kvennafrís með öllum þeim komum sem myndu missa vinnuna ef þær kæmu hingað í dag.