Kvennaverkfall 2025
Föstudagur 24. október 2025, eru konur og kvár hvött til að leggja niður launuð sem ólaunuð störf allan daginn eins og konur gerðu fyrst á kvennaári Sameinuðu þjóðanna árið 1975. Það var sögulegur viðburður á alheimsvísu enda lögðu 90% kvenna á Íslandi niður vinnu þann dag til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir samfélagið.
HVATNINGARBRÉF
Af hverju er boðað til Kvennaverkfalls núna?
24. október verða 50 ár frá fyrsta Kvennaverkfallinu, þegar konur á Íslandi stöðvuðu samfélagið. Ýmislegt hefur áunnist í baráttunni en misrétti þrífst enn í samfélaginu, launamunur kynjanna eykst, konur bera enn meginábyrgð á umönnun barna og heimilis og kynbundið ofbeldi er faraldur.
Vegna þessa boðuðu aðstandendur Kvennaverkfalls 2023 að árið 2025 yrði Kvennaár. Stjórnmálaleiðtogum voru afhentar kröfur Kvennaárs 24. október 2024 og nokkrum sinnum hefur verið ýtt á að þeim verði svarað og gripið til aðgerða. Sáralítið hefur þokast og í raun aðeins einni kröfu verið svarað, og engin uppfyllt. Þess vegna eigum við engra kosta völ og boðum til Kvennaverkfalls 24. október 2025. Við mætum þar til við þurfum ekki að mæta lengur!
Verður eitthvað gert til að minnast 50 ára baráttu kvenna?
Heldur betur. Í Reykjavík byrjar dagskráin kl. 13:30 á sögugöngu sem hefst við Sóleyjargötu. Gengið verður að Arnarhóli þar sem útifundur hefst kl. 15. Þetta er ekki ganga með leiðsögn, en þátttakendur ganga sjálfir á eigin hraða. Á leiðinni verða fjölmargar „stöðvar“ með alls kyns viðburðum í formi tónlistar, gjörninga, uppistands og fleira sem tákna vörður í kvennabaráttunni og heiðra þær konur sem hafa staðið í stafni. Boðið verður upp á táknmálstúlkun og túlkun á ensku og þau sem vilja það eru hvött til að skrá sig sérstaklega.
Hverjar eru kröfur Kvennaárs?
Kröfur Kvennaárs eru einfaldar kröfur og aðgerðir sem stjórnvöld geta komið í framkvæmd til að taka stór skref í átt að jafnrétti. Þær eru í þremur flokkum; launamisrétti kynjanna, ólaunuð vinna kvenna og kynbundið ofbeldi. Á meðal þeirra eru kröfur um að endurmeta virði kvennastarfa, brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla og grípa til margvíslegra aðgerða til að útrýma kynbundnu ofbeldi. Lesa má um kröfurnar hér.
Er þetta verkfall eða frídagur?
Kvennaverkfallið 2025 er hvorki verkfall í skilningi vinnulöggjafarinnar né frídagur launafólks. Kvennaverkfallið er baráttudagur fyrir jafnrétti á vinnumarkaði og í samfélaginu og tekur launafólk þátt á eigin forsendum og samkvæmt eigin ákvörðun. Konur og kvár eru í ólíkri stöðu á vinnumarkaði og við hvetjum öll sem geta til þess að taka þátt. Þau sem ekki geta tekið þátt eru hvött til að nota samfélagsmiðla og deila efni með #kvennaverkfall og #ómissandi.
Af hverju er Kvennaverkfallið heill dagur í ár?
Fyrstu tvö Kvennafríin, 1975 og 1985, voru boðuð sem heilsdags viðburðir. Nokkrum sinnum hefur verið gengið út á ákveðnum tíma dags til að vekja athygli á launamisrétti kynjanna en 2023 var boðað heilsdags verkfall. Kvennaverkfallið er boðað í heilan dag að þessu sinni til þess að undirstrika mikilvægi framlags kvenna og kvára til samfélagsins alls, í launuðum og ólaunuðum störfum, ásamt því að krefjast aðgerða vegna faraldurs ofbeldis.
Hvernig tekur þú þátt í Kvennaverkfalli?
Konur og kvár sem geta leggja niður störf, hvort sem um er að ræða launaða eða ólaunaða vinnu, líkt og umönnun barna, að sinna heimilinu eða þriðju vaktina svokölluðu. Svo eru þau hvött til að mæta í sögugöngu í Sóleyjargötu, á útifund á Arnarhóli eða viðburði í sinni heimabyggð og sýna samstöðu í verki.
Hvað ef ég get alls ekki lagt niður störf?
Konur og kvár vinna fjölmörg störf þar sem þjónusta getur ekki með nokkru móti dottið niður, svo sem í heilbrigðisgeiranum, í þjónustustörfum við fatlað fólk, aldrað fólk eða annað jaðarsett fólk. Þessar konur og þessi kvár eru #ómissandi. Við hvetjum þetta #ómissandi fólk til að sýna stuðning sinn í verki með því að fá vinkonu eða fjölskyldumeðlim til að mæta fyrir sig eða með því að setja mynd af sér á samfélagsmiðla á deginum undir myllumerkinu #ómissandi og auk aðalmerkisins #kvennaverkfall.
Þarf ég að láta vita á vinnustaðnum mínum ef ég ætla að taka þátt?
Konur og kvár eru í mismunandi stöðu á vinnustöðum. Ef þú treystir þér til og getur mætir þú ekki. Einhver vilja láta vita fyrir kurteisissakir og önnur telja rétt að fá leyfi.
Hvað ef launagreiðandinn minn leyfir mér ekki að fara eða ætlar ekki að greiða mér laun ef ég tek þátt?
Sögulega hafa atvinnurekendur stutt, eða að minnsta kosti ekki staðið í vegi fyrir, að konur leggi niður störf á Kvennafrídeginum. Atvinnurekendur hafa nægan tíma til að haga skipulagi sínu þannig að konur og kynsegin fólk þurfi ekki að mæta til vinnu 24. október. Í sumum tilfellum geta atvinnurekendur verið andsnúnir þátttöku eða gefið til kynna að dregið verði af launum starfsfólks sem ekki mætir til vinnu vegna Kvennaverkfallsins. Í slíkum aðstæðum er það val hvers og eins hvort þau treysti sér til að leggja niður störf og hætta á afleiðingar á sínum vinnustað.
Fæ ég borgað úr verkfallssjóði?
Verkfallssjóðir stéttarfélaga greiða ekki laun vegna þátttöku í Kvennaverkfalli. Það byggir á þeim forsendum að ekki sé um verkfall í skilningi vinnulöggjafarinnar að ræða. Atvinnurekendur eru hvattir til þess að draga ekki af launum kvenna og kvára vegna þátttöku í Kvennaverkfallinu svo fólk verði ekki fyrir launaskerðingu. Það er ekki hefð fyrir því að atvinnurekendur dragi af launum starfsfólks vegna þátttöku í þessum baráttudegi.
Ef einhver gengur í störfin mín, er viðkomandi þá að fremja verkfallsbrot?
Nei. Vinnustaðir eru hvattir til þess að haga skipulagi þannig að konum og kvár sé gert kleift að taka þátt og hluti af því er að hliðra til í starfsemi með því að láta karlmenn ganga í störf þeirra sem taka þátt í Kvennaverkfalli.
Ég er karlmaður. Á ég líka að taka þátt?
Karlmenn leggja ekki niður störf þann 24. október en þeir geta sýnt stuðning sinn í verki með því að taka á sig aukna ábyrgð heima fyrir t.d. við umönnun barna og í vinnu með því að taka að sér verkefni eða vaktir til að liðka fyrir og hvetja til þátttöku samstarfskvenna og -kvára í Kvennaverkfallinu. Líklegt er að einhverjir skólar verði óstarfhæfir þar sem meginuppistaða vinnuaflsins leggur niður störf, og því munu feður þurfa að gera ráðstafanir þennan dag.
Af hverju er kynsegin fólk hvatt til að taka þátt?
Kynsegin fólk og konur eiga það sameiginlegt að vera jaðarsett af feðraveldinu, framlag þeirra vanmetið og þau verða fyrir ofbeldi í mun meira mæli en karlar.
Er Kvennaverkfall bara fyrir íslenskt fólk?
Kvennaverkfallið er fyrir allar konur og kvár á Íslandi, þar með talið fólk af erlendum uppruna sem hér starfar. Erlendar konur og kvár sem geta lagt niður störf, launuð og ólaunuð, eru hvött til þess að gera það.
Hvað á ég að gera við börnin mín á meðan?
Það er líklegt að margar menntastofnanir munu loka eða hafa skerta starfsemi á meðan að Kvennaverkfallinu stendur. Þau sem geta, þurfa að treysta á að feður eða aðrir karlkyns ættingjar taki ábyrgð á barninu þennan dag og sinni því. Það eiga auðvitað ekki öll börn feður og ekki allir feður eru inni í myndinni. Börn eru velkomin á útifundi og aðra samstöðuviðburði þennan dag, sama af hvaða kyni þau eru, nema annað sé tekið fram. Ef þú getur ekki fært ábyrgð á barni þínu yfir á karlkynsaðila þennan dag, þá hvetjum við þig til að taka þátt í baráttunni með samfélagsmiðlapósti merktum #ómissandi.
Af hverju má ég ekki sinna börnunum mínum?
Það má auðvitað allt. Það er einfaldlega verið að hvetja til þess að samfélagið staldri við og hugsi um hvar önnur og þriðja vaktin lendir. Hver er það sem framkvæmir verk tengd heimilishaldinu og hver er það sem sér um hugrænu byrðina sem fellst í því að verkstýra þeim, muna eftir þeim og útdeila þeim. Konur sinna þessum ólaunuðu störfum í mun meira mæli en karlar.
