Götulokanir

Götulokanir vegna Kvennaverkfalls verða víðtækar um miðborg Reykjavíkur 24. október 2025. Götulokun á Lækjargötu milli Tryggvagötu og Geirsgötu nær frá kl. 06:00-21:00. Götulokanir á Sóleyjargötu, Fríkirkjuvegi, Lækjargötu og nærliggjandi götum verða frá 10:00-17:00. Opnað verður fyrr þar sem kostur gefst..

Strætó

Hægt verður að taka eftirfarandi leiðir að upphafsstað sögugönu sem hefst kl. 13:30 á Sóleyjargötu:

  • Leið 1 að Gömlu Hringbraut (15 mín tíðni)
  • Leið 2 að Háskóla Íslands (30 mín tíðni)
  • Leið 3 að Gömlu Hringbraut (15 mín tíðni)
  • Leið 5 að Gömlu Hringbraut (15 mín tíðni)
  • Leið 6 að Háskóla Íslands (15 mín tíðni)
  • Leið 8 að Gömlu Hringbraut (10 mín tíðni)
  • Leið 11 að Háskóla Íslands (30 mín tíðni)
  • Leið 12 að Háskóla Íslands (15 mín tíðni)
  • Leið 13 að Háskóla Íslands (30 mín tíðni)
  • Leið 15 að Gömlu Hringbraut (15 mín tíðni)

Hægt verður að taka eftirfarandi leiðir frá Arnarhóli kl. 16:

  • Leið 1 frá Hörpu (10 mín tíðni)
  • Leið 4 frá Skúlagötu (15 mín tíðni)
  • Leið 14 frá Hörpu (15 mín tíðni)
  • Leið 16 frá Skúlagötu (30 mín tíðni)
  • Leið 17 frá Skúlagötu (30 mín tíðni)
  • Leið 18 frá Skúlagötu (15 mín tíðni)

Eftir kl. 17 verður einnig hægt að taka eftirfarandi leiðir frá miðborginni:

  • Leið 2 frá Lækjartorgi (15 mín tíðni)
  • Leið 6 frá Lækjartorgi (10 mín tíðni)
  • Leið 11 frá Lækjartorgi (15 mín tíðni)
  • Leið 12 frá Lækjartorgi (15 mín tíðni)
  • Leið 13 frá Lækjartorgi (15 mín tíðni)

Breytingar á strætóleiðum vegna götulokana

Aðgengi

Táknmálstúlkun

Söguganga

Hraðar hendur verða með táknmálstúlkun í sögugöngunni. Mæting er kl. 13:20 á upphafsstað sögugöngunnar á Sóleyjargötu og samkomustaður fyrir þau sem vilja táknmálstúlkun er strætóstoppistöðin á Sóleyjargötu 21 (sjá kort). Táknmálstúlkuð ganga fer af stað 13:30 og aðeins verður boðið upp á hana einu sinni.

Útifundur

Dagskráin á Arnarhóli verður táknmálstúlkuð af Hröðum höndum á sviði. Táknmálstúlkun verður streymt á vinstri skjá.

Aðgengi hreyfihamlaðra

Söguganga

Söguganga fer fram á akbrautum, gangstéttum og torgum í borgarlandinu. Hún hefst á gatnamótum Sóleyjargötu og Njarðargötu. Tvö bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru á N1, fjögur hjá BSÍ og 11 við Landspítalann (sjá kort).

Útifundur

Útsýnisrampur fyrir hreyfihömluð verður á sunnanverðri flötinni.