Það eru liðin 50 ár frá því að konur hér á landi lögðu niður launuð sem ólaunuð störf sín og stöðvuðu þannig samfélagið. Þrátt fyrir þrotlausa baráttu í hálfa öld búa konur enn við misrétti og ofbeldi. Nú verður að grípa til aðgerða.

Eitt ár til aðgerða

Við gefum stjórnvöldum eitt ár — eða til 24. október 2025 — til að breyta lögum og grípa til aðgerða til að tryggja fullt og endanlegt jafnrétti kynjanna. Kvennaár hefur tekið saman kröfur aðstandenda um aðgerðir gegn ofbeldi, aðgerðir gegn launamuni kynjanna, aðgerðir til að bæta stöðu mæðra og aðgerðir gegn mismunun á vinnumarkaði.

Saman erum við sterkari

Þegar við komum saman, plottum og plönum, skálum og skellihlæjum, styðjum og hlustum — þá erum við sterkari. Fjöbreyttir viðburðir eru á dagatali Kvennaárs. Kynntu þér úrvalið!

Viðburðir