Aðgengi á Kvennavöku 19. júní
Útsýnisrampur fyrir hreyfihömluð verður í suðvesturhluta garðsins, við göngustíginn frá brúnni sem liggur í áttina að BSÍ, þar sem hægt er að leggja bílum. Gúmmímottur verða frá stíg að rampi.
Aðgengilegt klósett er við sviðið.
Eyrnatappa er hægt að nálgast við útsýnisramp.